Íþróttapar keypti einbýlishús í Hafnarfirði á 162 milljónir Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. janúar 2026 13:45 Jónína Þórdís og Viktor Karl hafa verið saman síðan 2017 og hafa nú keypt sér glæsilegt einbýlishús í Hafnarfirðinum. Jónína Þórdís Karlsdóttir, körfuboltakona hjá Ármanni og lögfræðingur Húseigendafélagsins, og Viktor Karl Einarsson, knattspyrnumaður hjá Breiðabliki og eigandi Zantino Suits, keyptu 243 fermetra einbýlishús við Sléttahraun 14 í Hafnarfirði. Ásett verð var 169,9 milljónir en þau keyptu það á 161,5 milljónir króna.
Húsið var byggt árið 1960, er þriggja hæða og skiptist í aðalhæð, efri hæð, bílskúr og tveggja herbergja aukaíbúð. Einnig er útgeymsla sem liggur að hlið bílskúrsins og stór, gróðursamur og skjólsæll garður. Eldhúsið er hið glæsilegasta. Stofan er stór og björt og hægt að fara út af henni á svalirnar. Björt borðstofa og stofa. Svefnherbergin eru þrjú talsins og parket á gólfum allra herbergja. Opið er á milli stofu og eldhúss, stór eyja tengir þau saman og er viðhaldsfrítt parket í báðum rýmum. Útgengt er frá stofunni á rúmgóðar og fallegar svalir sem snúa í suður. Aðkoman að húsinu er hellulögð með snjóbræðslukerfi og fylgdi með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Terrazzo-flísar eru á gólfi forstofunnar, gestasalernisins, borðstofunnar og bílskúrsins sem er einnig nýttur sem þvottahús. Á neðstu hæðinni er björt aukaíbúð með gluggum á fjóra vegu og sérinngangi. Garðurinn er gróðursamur og skjólsæll og er þar að finna rólu, rennibraut og barnahús. Svalirnar eru skjólsælar. Húsið séð úr bakgarðinum. Skjólgóður bakgarður með rólum og rennibraut. Fyrirliði Ármanns og miðjumaestró í Breiðablik Viktor Karl og Jónína Þórdís hafa verið saman síðan 2017 og trúlofuðu sig í júní 2024. Þau stofnuðu saman fatamerkið Bökk árið 2019 en það virðist ekki lengur starfandi miðað við heimasíðuna. Viktor Karl Einarsson ólst upp hjá Breiðablik, fór sextán ára út í atvinnumennsku til unglingaliðs AZ Alkmaar í Hollandi og þaðan í sænska liðið IFK Värnamo en sneri aftur í Breiðablik 2018. Hann hefur verið einn öflugasti miðjumaður Bestu deildarinnar síðan þá og tvívegis orðið Íslandsmeistari með liðinu. Hann stofnaði jakkafatamerkið Zantino Suits fyrir nokkrum árum. Jónína Þórdís Karlsdóttir endurvakti kvennalið Ármanns í körfubolta fyrir fimm árum síðan, er fyrirliði liðsins og hjálpaði því að tryggja sér sæti í efstu deild í fyrra. Hún lék í kvikmyndunum Hjartasteini (2016) og Mentor (2020). Jónína er lögfræðimenntuð, aflaði sér lögmannsréttinda á síðasta ári og starfar sem lögfræðingur Húseigendafélagsins. View this post on Instagram A post shared by Jónína Þórdís (@joninathordis)
Fasteignamarkaður Hús og heimili Hafnarfjörður Breiðablik Ármann Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Fleiri fréttir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Sjá meira