María í eitt besta lið Svíþjóðar en tekur íslenska landsliðið fram yfir það sænska Sindri Sverrisson skrifar 14. janúar 2026 15:46 María Ólafsdóttir Gros er komin í Djurgården-treyjuna. Djurgården IF Hin 22 ára gamla, akureyska fótboltakona María Ólafsdóttir Gros, sem valin var í A-landsliðshópinn fyrir síðustu leiki, var í dag kynnt sem leikmaður sænska úrvalsdeildarfélagsins Djurgården. „
Þetta er ótrúlega góð tilfinning og ég er mjög spennt. Ég hef fulla trú á því að ég geti hjálpað liðinu að ná markmiðum sínum, um leið og þetta er góður staður fyrir mig til að vaxa sem fótboltakona,“ segir María sem hafði úr fleiri kostum að velja. Hún kemur til Djurgården eftir að hafa verið lykilmaður hjá Linköping sem féll úr sænsku úrvalsdeildinni í haust. Djurgården er á meðal sterkustu liða Svíþjóðar og hafnaði í 4. sæti á síðustu leiktíð. Hjá Djurgården hittir María fyrir sinn gamla þjálfara, Skotann Willie Kirk, sem þjálfaði Linköping. Hún hefur áður einnig spilað í Skotlandi sem og í Hollandi, en með Þór/KA hér á landi „Hann [Kirk] er einn af bestu þjálfurum sem ég hef haft, þannig að það er mjög spennandi að halda áfram að vinna með honum. Mér fannst ég vaxa mikið á því hálfa ári sem ég hafði hann í Linköping,“ sagði María við heimasíðu Djurgården. View this post on Instagram A post shared by Djurgården Fotboll (@dif_fotboll) Ætlar sér í íslenska landsliðið María ólst upp á Akureyri en á íslenskan pabba og sænska móður. Hún hefur leikið 37 leiki fyrir yngri landslið Íslands og var eins og fyrr segir valin í A-landsliðshópinn sem mætti Norður-Írlandi í Þjóðadeildarumspili í vetur. Hún bíður þess þó enn að spila sínar fyrstu mínútur fyrir A-landsliðið. „Þetta var í fyrsta sinn sem ég er valin í A-landsliðið og auðvitað vill maður spila, jafnvel þótt ég hafi ekki spilað minn fyrsta leik þá. En ég lít á valið sem fyrsta skrefið í þá átt og þótt ég geti enn valið á milli þess að spila fyrir Ísland eða Svíþjóð, þá líður mér aðeins meira eins og Íslendingi,“ sagði María.
Sænski boltinn Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Handbolti Fleiri fréttir Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Stúkan: FH í miklum vandræðum Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Sjá meira