Síðustu ellefu ár þau hlýjustu í mælingasögunni Kjartan Kjartansson skrifar 14. janúar 2026 14:10 Orsök þeirrar hnattrænu hlýnunar sem nú á sér stað á jörðinni er stórfelld losun mannkynsins á gróðurhúsalofttegundum eins og þeirra sem prumpast út úr þessu kolaorkuverði í Kansas í Bandaríkjunum. AP/Charlie Riedel Árið í fyrra var það þriðja hlýjasta frá upphafi mælinga og undanfarin ellefu ár eru þau ellefu hlýjustu sem um getur. Meðalhitinn í fyrra slagaði hátt í neðri mörk Parísarsamkomulagsins.
Bæði Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) og Kópernikus, loftslagsstofnun Evrópusambandsins, staðfestu í dag að árið 2025 hefði verið það þriðja hlýjasta frá því að samfelldar mælingar hófust um miðja 19. öld. Árin 2024 og 2023 eru þau hlýjustu en 2025 var lítillega svalara en árið 2023. Meðalhiti jarðar var þá 1,44 gráðum yfir meðaltali tímabilsins fyrir iðnbyltingu. Metnaðarfyllra markmið Parísarsamkomulagsins er að halda hnattrænni hlýnun innan við 1,5 gráður til lengri tíma litið. Tölurnar sem WMO styðst við koma úr átta gagnasöfnum. Í tveimur þeirra var árið 2025 talið það annað hlýjasta í sögunni en það þriðja hlýjasta í sex þeirra. Síðustu þrjú ár eru þau þrjú hlýjustu í sögunni í öllum gagnasöfnunum og árin 2015 til 2025 eru þau ellefu hlýjustu sem um getur. La niña dugði ekki til að draga árið lengra niður Nýliðið ár var á meðal þeirra allra hlýjustu þrátt fyrir áhrif La niña-veðurfyrirbrigðisins. Það er náttúruleg sveifla í Kyrrahafi sem hefur almennt svalara loftslag í för með sé á hnattræna vísu en andstæðan, El niño. Ástæðan er hröð uppsöfnun gróðurhúsalofttegunda í lofthjúpi jarðar sem menn bera ábyrgð á með stórfelldri losun sinni. Sjávarhiti var einnig í hæstu hæðum í fyrra samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem voru birtar í vísindaritinu Advances in Atmospheric Sciences. Þær fréttir eru ekki óvæntar þar sem áætlað er höfin hafi tekið við um níutíu prósent þeirrar hnattrænu hlýnunar sem menn hafa valdið. Aukinn sjávarhiti hefur áhrif á vistkerfi í sjónum. Ekki síst geta hitabylgjur í sjónum leikið grátt kóralrif sem aragrúi lífvera reiðir sig á. Hlýjasta árið á Íslandi til þessa Árið 2025 var það hlýjasta á Íslandi í mælingasögunni, 1,1 gráðu yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 samkvæmt gögnum Veðurstofu Íslands. Sérstaklega setti fordæmalaus hitabylgja í maí svip sinn á árið en vorið í heild var það hlýjasta frá upphafi. Hnattræn hlýnun er talin hafa gert hitabylgjuna í maí þremur gráðum en hún hefði annars verið og fjörutíu prósent líklegri samkvæmt úttekt sem hópur vísindamanna gerði í sumar.
Loftslagsmál Vísindi Umhverfismál Jarðefnaeldsneyti Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Sjá meira