„Látið undan þrýstingi stóru fyrirtækjanna í búvöruframleiðslu“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 14. janúar 2026 12:42 Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir frumvarp atvinnuvegaráðherra að búvörulögum skref í rétta átt. Miður sé að ráðherra hafi látið undan þrýstingi stórframleiðenda. Vísir/Ívar Fannar Frumvarp að nýjum búvörulögum er skref í rétta átt að mati framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Hann segir miður að ráðherra virðist hafa látið undan þrýstingi og tekið sé minna skref en þegar frumvarpsdrög voru birt.
Drög að frumvarpi að breyttum búvörulögum voru birt í október en frumvarpið er á dagskrá Alþingis í dag, á fyrsta fundi þess eftir jólafrí. Frumvarpinu er ætlað að snúa við umdeildum breytingum á búvörulögum sem samþykkt voru á vorþinginu 2023, sem heimiluðu samruna afurðastöðva í auknum mæli án samþykkis samkeppnisyfirvalda. Á grundvelli laganna hefur Kaupfélag Skagfirðinga til að mynda getað keypt Kjarnafæði Norðenska án þess að Samkeppniseftirlitið fengi rönd við reist. Skref stigið til baka? Bændasamtökin kvörtuðu sáran undan drögunum að nýja frumvarpinu, þegar þau birtust í haust, og því að ekki hafi verið haft samráð við þá. Svo virðist sem rödd bænda hafi fengið að rata inn í frumvarpið, sem nú er lagt fyrir þingið. „Það er verið að stíga skref til baka frá þeim óskapnaði sem Alþingi samþykkti þegar afurðarstöðvunum voru veittar mjög víðtækar undanþágur frá samkeppnislögum,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Undanþágurnar á nú að þrengja frá því sem gilt hefur undanfarin misseri, bæði gagnvart kjötafurðastöðvunum en einnig mjólkuriðnaðinum, sem hefur haft undanþágur síðustu tvo áratugi. „Hins vegar hefur atvinnuvegaráðherra látið undan þrýstingi úr landbúnaðinum hvað varðar skilgreiningu á þeim fyrirtækjum sem geta fallið undir undanþágurnar.“ Tækifæri til að styrkja stöðu bænda ekki gripið Í frumvarpsdrögum var tekið fram að undanþágu fengju framleiðendafélög í meirihlutaeigu eða í stjórn bænda. Nú hefur það verið útvíkkað til afurðastöðva í mjólk og rauðu kjöti. Ólafur segir þetta áhyggjuefni. Hefðu drögin haldist óbreytt hefði að hans mati staða bænda styrkst og stóru félögin, eins og KS og SS, þurft að breyta sínu skipulagi vildu þau undanþágurnar, þannig að bændur væru við stjórn. „Þetta tækifæri til að styrkja stöðu bænda í virðiskeðjunni, það á augljóslega ekki að grípa það. Þarna hefur verið látið undan þrýstingi stóru fyrirtækjanna í búvöruframleiðslu er ég hræddur um.“ Eins og fyrr segir mótmæltu bændur mjög drögunum að frumvarpinu þegar þau voru birt í haust og voru Bændasamtökin ákveðin í stuðningi sínum við breytingarnar umdeildu frá 2023. Ólafur segist ekkert í þessu skilja. „Ég hef aldrei skilið þetta Stokkhólms-heilkenni Bændasamtakanna gagnvart stóru afurðastöðvunum og skil það ekki enn,“ segir Ólafur. „Við vonum að niðurstaðan verði sú að hægt verði að tryggja hagræðingu í búvöruframleiðslu án þess að bera fyrir borð hagsmuni samkeppni og neytenda.“ Vonar að hlustað verði á öll sjónarmið í þetta skiptið Hann segir að Félag atvinnurekenda muni skila inn umsögn um frumvarpið þegar það fer til meðferðar í atvinnuveganefnd að lokinni fyrstu umræðu í þinginu. Hann vonar að nefndin fái félagið, og aðra hagsmunaaðila, að borðinu í þetta skiptið en slíkt var ekki gert við breytingarnar 2023. „Við munum leggja til að eftirlitsheimildir Samkeppniseftirlitsins verði styrktar enn frekar í þessum lögum og að skilgreiningin á þeim sem njóti undanþágunnar miðist við félög sem eru raunverulega í eigu og undir stjórn bænda,“ segir Ólafur. „Á sínum tíma var ekki óskað eftir sjónarmiðum sem voru á skjön við það sem meirihluti nefndarinnar þá vildi keyra í gegnum þingið. Vonandi verður það öðruvísi núna.“
Alþingi Búvörusamningar Landbúnaður Tengdar fréttir Alþingi kemur saman í dag eftir jólafrí Alþingi kemur saman í dag í fyrsta sinn eftir jólafrí. Þingfundur hefst klukkan 15 en á dagskrá er meðal annars minningarstund vegna Sturlu Böðvarssonar, fyrrverandi þingmanns og forseta Alþingis. 14. janúar 2026 06:57 Kúabændur skora á ráðherra að falla frá breytingum Kúabændur segja nýtt frumvarp um breytingar á búvörulögum ráðast gegn starfsumhverfi sem þeir hafi starfað eftir í tvo áratugi og byggt skipulag og fjárfestingar sínar á. Tæplega fimm hundruð kúabændur skora á ráðherra að falla frá frumvarpinu. 26. nóvember 2025 13:59 Bændum verulega brugðið vegna breytinga á búvörulögum Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, segir bændur verulega ósátta við frumvarpsdrög atvinnuvegaráðherra um breytingar á búvörulögum. Þeim hafi verið brugðið að sjá tillöguna og telji breytingarnar sérstaklega hafa slæm áhrif á mjólkuriðnað í landinu. 8. október 2025 09:06 Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Trump tókst að fella Massie Erlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Erlent Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Innlent Fleiri fréttir Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Sjá meira
Alþingi kemur saman í dag eftir jólafrí Alþingi kemur saman í dag í fyrsta sinn eftir jólafrí. Þingfundur hefst klukkan 15 en á dagskrá er meðal annars minningarstund vegna Sturlu Böðvarssonar, fyrrverandi þingmanns og forseta Alþingis. 14. janúar 2026 06:57
Kúabændur skora á ráðherra að falla frá breytingum Kúabændur segja nýtt frumvarp um breytingar á búvörulögum ráðast gegn starfsumhverfi sem þeir hafi starfað eftir í tvo áratugi og byggt skipulag og fjárfestingar sínar á. Tæplega fimm hundruð kúabændur skora á ráðherra að falla frá frumvarpinu. 26. nóvember 2025 13:59
Bændum verulega brugðið vegna breytinga á búvörulögum Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, segir bændur verulega ósátta við frumvarpsdrög atvinnuvegaráðherra um breytingar á búvörulögum. Þeim hafi verið brugðið að sjá tillöguna og telji breytingarnar sérstaklega hafa slæm áhrif á mjólkuriðnað í landinu. 8. október 2025 09:06
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent