Hættið að rukka vangreiðslugjald! Breki Karlsson og Runólfur Ólafsson skrifa 12. janúar 2026 13:16 Á bílastæðum sem nota þjónustu Checkit.is eru engin vangreiðslugjöld innheimt. Þar undir eru meðal annars Þingvellir, Seljalandsfoss, Höfðatorg, Selafjaran og Hafnarhólmi. Ef ökumaður gleymir eða vanrækir að borga fyrir bílastæði fær hann senda kröfu í heimabanka. Upphæðin er sú hin sama og hann hefði átt að borga fyrir notkun stæðisins, ásamt 130 króna bankakostnaði. Það er allt og sumt. Ekkert vangreiðslugjald, engar hótanir. Samkvæmt okkar upplýsingum skila greiðslur sér allt að 100%. Fólk er nefnilega tilbúið til að borga fyrir veitta þjónustu. Fæstir sætta sig aftur á móti við óútskýrð refsigjöld sem birtast fyrirvaralaust í heimabanka, dráttarvexti og innheimtukröfur fyrir einfaldar yfirsjónir eða gleymsku vegna afnota bílastæða. Þannig vinna Parka, Myparking, Sannir landvættir, Green parking og Autopay. Útbreidd gremja ríkir vegna þessara vinnubragða og stjórnvöld undirbúa nú aðgerðir.. Sátt myndi ríkja um Checkit.is leiðina. Engin vangreiðslugjöld, engar hótanir. Hið eina rétta er því að hætta að rukka vangreiðslugjöld. Skuggahlið vangreiðslugjaldsins Vangreiðslugjaldið er eftirlíking af bílastæðasektunum hjá Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélögum sem eiga sér skýra stoð í lögum. Lög heimila ekki að einkaaðilar beiti sektum. Til þess að innheimta vangreidd gjöld styðjast heiðvirð fyrirtæki við innheimtulög. Vangreiðslugjald bílastæðabraskaranna er miklu hærra en innheimtulög leyfa. Þau er óhæfilega há og í engu samræmi við meint tjón fyrirtækjanna eða kostnað þeirra, heldur eru þau lögð á til tekjuöflunar. Gjöldin eru því ósanngjörn og andstæð góðum viðskiptavenjum. Aðeins var rukkað fyrir bílastæði við 6 ferðamannastaði fyrir fjórum árum. Sölumenn Parka/Myparking og Öryggismiðstöðvarinnar (Sannir landvættir og Green parking) hafa hins vegar herjað af krafti á landeigendur við aðra ferðamannastaði. Sölumennirnir hafa boðið ókeypis uppsetningu á gjaldtökubúnaði og fría innheimtu á stæðisgjöldum. Í staðinn fá bílastæðafyrirtækin hlut í stæðisgjaldinu og allt vangreiðslugjaldið. Fáir landeigendur slá hendinni á móti þessu. Afleiðingin er sú að nú er gjaldskylda á 44 bílastæðum á ferðamannastöðum, þar af eru 6 hjá Checkit.is. Vangreiðslugjald er óþarft, það er ósanngjarnt og á mjög gráu svæði lagalega og tekjulind í sjálfu sér. Án hinnar ágengu sölumennsku má leiða líkur að því að sátt ríkti hér á landi um greiðslur fyrir afnot bílastæða þar sem þeirra er raunverulega þörf. Við skorum á ofangreind fyrirtæki að hætta tafarlaust að leggja á vanskilagjöld! Jafnframt skorum við á eigendur bílastæða að skipta aðeins við fyrirtæki sem ekki leggja á vangreiðslugjöld! Breki Karlsson, formaður NeytendasamtakannaRunólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Breki Karlsson Runólfur Ólafsson Neytendur Bílastæði Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Sjá meira