Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Jón Ísak Ragnarsson skrifar 12. janúar 2026 00:09 Donald Trump á blaðamannafundi fyrir helgi. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti hvetur stjórnvöld í Kúbu til að semja við Bandaríkjamenn, ellegar muni Kúbverjar ekki lengur hafa aðgang að olíu og gjaldeyri frá Venesúela.
Trump hefur beint sjónum sínum að Kúbu eftir handtöku Maduro í Venesúela í upphafi árs, og haft uppi hótanir í garð þeirra á samfélagsmiðlum. Kúba og Venesúela hafa lengi verið samherjar og hafa mikil viðskipti verið milli landanna. Talið er að um 35 þúsund tunnur af olíu séu ferjaðar frá Venesúela til Kúbu dag hvern. Haft er eftir utanríkisráðherra Kúbu á vef BBC að hann telji Kúbu hafa rétt á því að flytja inn olíu frá hverjum sem er, án afskiptasemi Bandaríkjanna. Bandaríkjamenn hafa verið að taka yfir stjórn olíuflutningaskipa í Karíbahafinu, sem talin eru bera olíu frá Venesúela en sigla undir fölsku flaggi. Á föstudag tóku þeir yfir fimmta olíuskipið af þessu tagi og eru þeir sagðir líklegir til að taka yfir stjórn á fleiri skipum á næstunni, en allavega sextán olíuflutningaskipum hefur verið siglt frá Venesúela á undanförnum vikum. Þessar aðgerðir hafa þegar haft gríðarlega neikvæð áhrif á efnahag Kúbu, en þar ríkir þessa dagana mikill orkuskortur. „Kúba lifði árum saman á mikilli olíu og peningum frá Venesúela. Í staðinn veitti Kúba síðustu tveimur einræðisherrum Venesúela aðstoð á sviði leyniþjónustu, EN EKKI LENGUR!,“ sagði Trump í færslu á samfélagsmiðlum. „Kúba fær ekki lengur olíu eða peninga, ekkert. Ég legg til að þeir semji við okkur, áður en það verður of seint!,“ sagði Trump. Skjáskot
Donald Trump Kúba Venesúela Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Pútín sló öll met Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Sjá meira