Golf

McIlroy miður sín yfir um­mælum á­horf­enda um dóttur hans

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Rory McIlroy er mjög ósáttur með stuðningsmenn Bandaríkjanna á Ryder bikarnum. 
Rory McIlroy er mjög ósáttur með stuðningsmenn Bandaríkjanna á Ryder bikarnum.  Vísir/Getty

Rory McIlroy segir hróp áhorfenda á Ryder bikarnum í golfi, sem fór fram í New York í Bandaríkjunum síðasta haust, hafa farið langt yfir öll velsæmismörk.

Norður-Írinn er næstefsti kylfingur heimslistans og átti frábært ár í fyrra.

Hann kláraði loksins alslemmuna sem hann hafði sóst eftir lengi og leiddi síðan lið Evrópu til sigurs gegn Bandaríkjunum í Ryder bikarnum.

Á meðan mótinu stóð fékk McIlroy sig fullsaddan af frammíköllum bandarískra stuðningsmanna og svaraði þeim fullum hálsi.

McIlroy ræddi svo Ryder bikarinn í nýjasta þætti hlaðvarpsins „The Overlap.“

„Þegar við spiluðum í Minnesota árið 2016 fannst mér ástandið slæmt, en það var ekkert í samanburði við þetta. Við vissum að við værum að fara til New York og það yrðu mikil læti og áreiti, allir vöruðu okkur við því. Ég bjóst samt ekki við því að þetta yrði svona slæmt“ sagði kylfingurinn.

„Erica, konan mín, er fullorðinn og sterkur einstaklingur, hún getur höndlað þetta. En svo fór áreitið að beinast að [fjögurra ára] dóttur minni. Ég heyrði hluti um dóttur mína sem ég get ekki endurtekið. Þetta var hræðilegt“ hélt hann svo áfram.

McIlroy sagði svo að „þegar fimmtíu þúsund áhorfendur eru á svæðinu þarf aðeins fimm hundruð slæm epli til að skemma stemninguna. Þá myndast múgæsingur og fólk fer að leyfa sér ljóta hluti.“

Hann sagðist einnig svekktur með að fyrirliði Bandaríkjanna, Keegan Bradley, hefði ekkert sagt á blaðamannafundum til að róa mannskapinn.

McIlroy þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af næsta móti því þá verður lið Evrópu á heimavelli en mótið 2027 mun fara fram í Limerick á Írlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×