Ríkisstjórn Gabon setti fótboltalandsliðið sitt í bann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2026 15:02 Pierre Emerick Aubameyang er kominn í bann hjá ríkisstjórn Gabons og landsliðið hefur verið leyst upp. Getty/Visionhaus Ríkisstjórn Gabon hefur leyst upp karlalandsliðið sitt í fótbolta og sett það í bann eftir „skammarlega frammistöðu“ á Afríkukeppninni 2025, eins og hún orðar það.
Það var ekki gefið upp hversu bannið verður langt en það má búast við því að það verði ekki svo langt að landsliðið detti út á komandi mótum. Gabon féll úr leik í riðlakeppninni. Liðið tapaði öllum leikjum sínum á móti Kamerún (0-1), Mosambík (2-3) og Fílabeinsstöndinni (2-3). Öll hin þrjú liðin komust áfram í sextán liða úrslitin. Fyrirliðinn Bruno Ecuele Manga og Pierre-Emerick Aubameyang hafa einnig verið settir í bann frá því að spila aftur fyrir landsliðið sitt. Aubameyang er markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi með 40 mörk í 86 leikjum en Manga er sá leikjahæsti með 118 leiki frá 2006 til dagsins í dag. Gabon er í 78. sætinu á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins eða fjórum sætum neðar en Ísland. Landsliðið komst ekki á Afríkumótið fyrir tveimur árum en fór í sextán liða úrslitin árið 2021. Liðið komst ekki áfram í undankeppni HM 2026, komst í umspilið en tapaði þá 4-1 á móti Nígeríu í undanúrslitunum og var þar með úr leik. Gabon hefur aldrei komist í úrslitakeppni HM en besti árangur landsliðsins á Afríkumótinu eru átta liða úrslitin en þangað komst Gabon 1996 og 2012. Gabon’s government has suspended the national team until further notice after a “disgraceful performance” at the 2025 AFCON, where they exited in the group stage.Captain Bruno Ecuele Manga and Pierre-Emerick Aubameyang have also been banned from representing the Panthers. pic.twitter.com/DLDkggE758— Maher Mezahi (@MezahiMaher) January 1, 2026
Afríkukeppnin í fótbolta Gabon Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti KR - Njarðvík | Vinna KR-ingar þriðja leikinn í röð? Körfubolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Sjá meira