Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. desember 2025 14:16 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins á landsþinginu í október. Vísir/Lýður Tap af rekstri Miðflokksins á árinu 2024 nam 133 milljónum króna samanborið við 24 milljóna króna rekstrarafgang árið á undan. Flokkurinn setti 141 milljón króna í kosningabaráttuna á Alþingi í fyrra.
Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi flokksins. Næststærsti útgjaldaliður flokksins í fyrra var rekstur skrifstofu flokksins sem kostaði rúmlega 57 milljónir króna. Laun- og launatengd gjöld hjá flokknum í fyrra námu tæpum 18 milljónum króna. Flokkurinn fékk tæplega 45 milljónir frá ríkissjóði í fyrra, sex milljónir frá Alþingi og tæpa milljón frá sveitarfélögum. Þá styrktu fyrirtæki flokkinn um 12,4 milljónir króna í fyrra og einstaklingar um 890 þúsund krónur. Átta fyrirtæki styrktu flokkinn um 650 þúsund krónur sem er hámarksupphæð. Þar eru áberandi fyrirtæki í sjávarútvegi á borð við Hval, Síldarvinnsluna, Einhamar Seafood, Skinney-Þinganes og Samherja. Meðal styrktaraðila sem gáfu lægri upphæð má nefna stórfyrirtæki á borð við Kaupfélag Skagfirðinga, Útgerðarfélag Reykjavíkur, Kaldvík, Stoðir, HS Orku, Góu Lindu, Skel, KFC og Kviku banka. Stærsta framlag einstaklings til flokksins var 550 þúsund krónur úr hendi Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns flokksins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og eiginkona hans Anna Sigurlaug Pálsdóttir þegar Sigmundur var í Framsóknarflokknum.vísir/anton brink Eigið fé flokksins í árslok 2024 var neikvætt um sem nemur 26 milljónum króna. Eignir flokksins námu 89 milljónum í lok árs en þar munar mestu um fasteign að verðmæti 74 milljónir króna. Skuldir flokksins voru 116 milljónir króna í lok árs.
Miðflokkurinn Alþingi Alþingiskosningar 2024 Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira