Hröð og skemmtileg rússíbanareið Lestrarklefinn 12. desember 2025 13:44 Menningarvefurinn Lestrarklefinn fjallar um bækur og nú hefur Skólastjóri Ævars Þórs verið tekinn fyrir. Nýjasta bók Ævars Þórs er tekin fyrir í Lestrarklefanum. Rebekka Sif hefur þetta að segja um bókina:
Ævar Þór, stundum kallaður Vísindamaður, er rithöfundur sem kann svo sannarlega að ná til barna og unglinga. Í þetta skiptið heillaði hann heila dómnefnd upp úr skónum og hlaut fyrir vikið Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur. Það kom í ljós fyrir heilu ári, en þar sem Ævar var þá þegar með fjölda bóka á útgáfulistanum ákvað hann að fresta útgáfunni um ár. Bókin sem um ræðir heitir Skólastjórinn og fjallar um 12 ára óþekktarorm, Salvar Þór. Merkilegt nokk er þessi Salvar til í alvörunni en þegar Ævar var sjálfur í menntaskóla tók vinur hans upp á því að sækja um stöðu skólameistara í MA og fær hann þaðan innblásturinn Rebekka Sif fjallar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn Litríkt persónugallerí Þegar maður hefur lestur þessarar bókar gerir maður samning við höfundinn að þetta sé auðvitað fullkomlega mögulegt, að tólf ára barn geti sótt um stöðu skólastjóra og fengið starfið þar sem enginn annar sótti um og gleymt hafði verið að setja inn aldurstakmark. Salvar reddar sér allskyns gráðum á netinu og fær því auðvitað djobbið. Fullorðna fólkið er skiljanlega sjokkerað og veit vart í hvorn fótinn það á að stíga. Samt sem áður fær Salvar lyklana af skólanum, skólaritarann Lenu sér til aðstoðar og eigin skrifstofu. Besta vinkona hans er Guðrún, uppátækjasöm stúlka sem stendur með Salvari í einu og öllu. Við fáum að kynnast fleiri persónum, þar á meðal hræðilega íslenskukennaranum Dagnýju, óþolandi vinkonu mömmu hans, Stellu, Bergi ljósastaur og genginu hans, og fleiri litríkum karakterum (þar á meðal Bekkjargrísnum!). Ekki bara grín og glens Sem skólastjóri fær Salvar fullkomið vald til að gera skólann að leikvelli sínum. Pizza og kandífloss í hádegismat og algjört frelsi til að blunda í tíma. Það er þó ekki allt dans á rósum, því miður er starf skólastjóra ábyrgðarhlutverk og hann fær meðal annars eineltismál inn á borð til sín. Þetta er þroskasaga hans Salvars, en hann þarf að rísa upp gegn hópþrýstingi svölu unglinganna og standa með sjálfum sér. Hann lærir heilmikið og sýnir að hann er með stórt hjarta og vill öllum vel, þó að hann sé stríðinn og gangi stundum of langt. Vinátta hans og Guðrúnar er falleg, það kemur í ljós í seinni hluta bókar að hann hefur hjálpað henni við lærdóminn lengi þar sem hún er með lesblindu. Fjölskylda Salvars er einnig flókari en hún lítur út fyrir að vera í fyrstu, einstæð móðir og fjarverandi faðir sem vanrækir hann. Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Menning Jól Bókaútgáfa Mest lesið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Lífið Páskabingó Blökastsins Lífið „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Settu tærnar upp í loft og fengu knús Menning Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Lífið Fleiri fréttir Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Sjá meira