Golf

Á­stand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs

Aron Guðmundsson skrifar
Félagsmenn Karasjok GK munu þurfa að leita sér að nýjum golfklúbbi
Félagsmenn Karasjok GK munu þurfa að leita sér að nýjum golfklúbbi Vísir/Getty

Hátt upp í fimm þúsund kylfingar sem voru meðlimir í golfklúbbnum Karasjok GK í Noregi munu þurfa að finna sér nýjan golfklúbb eftir að Golfsamband Noregs svipti Karasjok mikilvægum réttindum.

Greint er frá málinu á vef Nettavisen þar sem að segir að lengi vel hafi aðsókn í að vera meðlimur í golfklúbbi Karasjok GK verið mikil.

Félagsgjöldin þar hafa þótt með lægsta móti og þar sem að klúbburinn hefur verið aðili að ákveðnu kerfi, sem gerir félagsmönnum það kleift að spila á fleiri völlum í Noregi, hefur fólk víðs vegar í Noregi orðið orðið félagi í klúbbnum

Nú hefur Golfsamband Noregs hins vegar svipt Karasjok GK þeim réttindum og klúbburinn þar með ákveðið að segja upp samningi þeirra 4600 kylfinga sem eiga að honum aðild.

Ástæðan sem norska golfsambandið ber fyrir ákvörðun sinni er slæmt viðhald á golfvelli Karasjok GK en klúbburinn greyndi félagsmönnum sínum frá þessum vendingum með tölvupósti.

Karasjok GK hefur ekki tekist að halda sínum golfvelli í því gæðaástandi sem norska sambandið fer fram á.

„Sökum þessa hefur klúbburinn misst landsréttindi sín. Þar með geta félagar hans ekki spilað á öðrum golfvöllum í Noregi,“ segir í tölvupósti frá Karasjok GK til félagsmanna sinna.

Klúbburinn ætlar að leggja á sig vinnu við að koma velli sínum aftur í þann gæðaflokk sem norska sambandið krefst að vellir séu í. Þegar það hefur tekist verði félagsmenn boðnir velkomnir aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×