Gerðu árás á rússneska efnaverksmiðju í Bryansk Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 22. október 2025 06:51 Flaugunum er skotið af orrustuþotum og þær fljúga svo langar vegalengdir undir ratsjám óvinarins áður en þær hitta skotmörk sín. MBDA/Thierry Wurtz Úkraínski herinn gerði í gærkvöldi árás á efnaverksmiðju í rússnesku borginni Bryansk.
Herinn segist hafa notað breskar langdrægar Storm Shadow flaugar til verksins og munu flaugarnar hafa komist framhjá rússneskum loftvörnum þannig að árásin er sögð hafa heppnast fullkomlega. Enn er verið að meta afleiðingar árásarinnar en Rússar hafa löngum varað vesturlönd við því að láta Úkraínumenn hafa langdræg vopn sem hægt er að nota til árása á sjálft Rússland. Yfirvöld í Úkraínu segja hinsvegar nauðsynlegt að hafa þann möguleika að geta gert Rússum skráveifu innan þeirra eigin landamæra. Þeir segja að verksmiðjan í Bryansk hafi verið Rússum afar mikilvæg í þeirra hergagnaframleiðslu, þar hafi verið framleitt byssupúður, sprengiefni og fleira í þeim dúr. Donald Trump Bandaríkjaforseti tjáði sig svo í nótt um hversvegna fyrirhuguðum fundi hans og Pútíns Rússlandsforseta hafi verið frestað um óákveðinn tíma og sagðist ekki vilja sitja á tilgangslausum fundum.
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Úkraína Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira