Grunnlán nær nú aðeins til helmings kaupverðs Árni Sæberg skrifar 21. október 2025 15:44 Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink Íslandsbanki hefur ákveðið að grunnlán í fasteignakaupum miðast nú við aðeins helming af kaupverði. Restin sem lánað er fyrir flokkast sem viðbótarlán, sem eru oftar en ekki á verri kjörum en grunnlán.
Í svari bankans við fyrirspurn Vísis segir að viðmiðunum hafi verið breytt í september síðastliðnum á þann hátt að við fasteignakaup miðist grunnlán nú við 50 prósent af kaupverði en áður hafi það verið 70 prósent af fasteignamati. Viðbótarlán miði nú við frá 50 til 80 prósent af kaupverði en hafi áður verið frá 70 prósent af fasteignamati upp að 80 prósent af kaupverði. Fyrstu kaupendur geta enn fjármagnað 85 prósent Í endurfjármögnun miðist grunnlán nú við 50 prósent af fasteignamati og viðbótarlán frá 50 til 70 prósent af fasteignamati. Áður hafi grunnlán verið frá 0 til 70 prósent af fasteignamati. Fyrstu kaupendum standi enn til boða húsnæðisfjármögnun að hámarki allt að 85 prósent af kaupverði íbúðarhúsnæðis. Innleiðing reglugerðar veldur breytingunum Þá segir að breytingarnar komi til vegna reglugerðar sem verið sé að innleiða um eiginfjárbindingu, svonefnda CRR III-reglugerð. Gert sé ráð fyrir að frumvarp verði lagt fyrir á næstunni en meginreglan hingað til hafi verið að eiginfjárbinding vegna húsnæðislána sé 35 prósent fyrir þann hluta láns sem er upp að 80 prósent veðhlutfalli en 75 prósent fyrir þann hluta sem er yfir 80 prósent veðsetningu. Með innleiðingu áðurnefndrar CRR III-reglugerðar breytist þessi viðmið á þann hátt að eiginfjárbinding þess hluta húsnæðislána sem er upp að 55 prósent veðsetningu verði 20 prósent en eiginfjárbinding þess hluta sem er umfram það 75 prósent.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Fjármálafyrirtæki Íslandsbanki Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Sjá meira