Enst lengst með sama lið og tekur nú við Bandaríkjunum Sindri Sverrisson skrifar 9. október 2025 18:01 Erik Spoelstra fær þann heiður að stýra Bandaríkjunum á ÓL á heimavelli 2028. Getty/Carmen Mandato Erik Spoelstra, þjálfari Miami Heat, fær það hlutskipti að stýra bandaríska karlalandsliðinu í körfubolta fram yfir Ólympíuleikana sem haldnir verða í Bandaríkjunum 2028, í Los Angeles.
ESPN greinir frá því að Spoelstra taki við af Steve Kerr og verði við stjórnvölinn á HM 2027 og ÓL 2028, eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari þegar Bandaríkin unnu Ólympíugullið í París í fyrra. Bandaríkin hafa fagnað sigri í körfubolta karla á síðustu fimm Ólympíuleikum í röð og alls sautján sinnum. Leikarnir í LA verða fjórðu leikarnir í röð þar sem liðið mætir til leiks með nýjan þjálfara, eftir að Mike Kryzewski var með liðið í Ríó 2016, því næst Grepp Popovich og nú síðast Kerr. Spoelstra er sá þjálfari í NBA-deildinni sem lengst hefur þjálfað á sama stað. Hann hefur verið aðalþjálfair Miami Heat frá árinu 2008, eftir að hafa áður verið aðstoðarþjálfari liðsins í áratug. Spoelstra, sem verður 55 ára í næsta mánuði, hefur tvívegis fagnað NBA-meistaratitli sem þjálfari, árin 2012 og 2013, með LeBron James í broddi fylkingar. ESPN bendir á að lið Bandaríkjanna gæti mætt talsvert endurnýjað til leiks í LA frá því í París. Kevin Durant, sá eini sem fagnað hafi fernum gullverðlaunum í körfubolta karla á Ólympíuleikum, útiloki reyndar ekki að spila 2028. Stephen Curry hafi hins vegar sagt að ÓL í París verði hans einu leikar og LeBron James verði orðinn 43 ára.
NBA Ólympíuleikar 2028 í Los Angeles Mest lesið Gunnar Nelson í sjómann við mann sem hann átti að mæta í búrinu Sport Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Fótbolti Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Körfubolti Hallgrímur Jónasson: „Staðan er bara alvarleg“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Körfubolti Sagan skrifuð í Lúndunamaraþoninu: „Urðum vitni að einhverju ótrúlegu“ Sport Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Körfubolti Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Körfubolti Albert áberandi í sóknarleik Fiorentina en mörkin komu ekki Fótbolti Sjáðu öll mörkin úr Bestu deild kvenna: Draumabyrjun nýliðanna og dramatík fyrir norðan Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Uppgjörið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Jokic rekinn út úr húsi og Denver á bjargbrúninni Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Uppgjörið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Jakob og Linards framlengja veru sína í KR Ótrúlegur LeBron leiddi Lakers til sigurs „Ég má ekki segja leyndarmál“ Sindri einum leik frá úrslitaeinvíginu Keflavík - Haukar 98-81 | Allt jafnt í einvíginu „Við þurfum að vinna leik á mánudaginn“ Breiðablik mun berjast um sæti í Bónus deildinni Grindavík - Njarðvík 94-75 | Grindavík er einum sigri frá úrslitaeinvíginu Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Pargo: Þurfum að vinna tvo leiki í viðbót Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Martin með stigahæstu mönnum í sigri „Við ætlum ekki að nota það sem einhverja hækju“ Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Fyrstur til að vera kosinn varnarmaður ársins með fullu húsi Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Úlfarnir og Haukarnir með endurkomur Sjá meira
Sjáðu öll mörkin úr Bestu deild kvenna: Draumabyrjun nýliðanna og dramatík fyrir norðan Íslenski boltinn
Sjáðu öll mörkin úr Bestu deild kvenna: Draumabyrjun nýliðanna og dramatík fyrir norðan Íslenski boltinn