Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. september 2025 09:46 Tónlistarmaðurinn mun sæta fangelsisvist en hversu löng hún verður er enn óvíst, þar til á föstudag. Frazer Harrison/Getty Images Saksóknarar í máli bandaríska tónlistarmannsins Sean „Diddy“ Combs hafa farið fram á að honum verði gert að sæta ellefu ára fangelsisvist. Tónlistarmaðurinn hefur verið sakfelldur í tveimur ákæruliðum af fimm og mun dómari kveða upp refsingu næstkomandi föstudag 3. október.
Combs var í september á síðasta ári ákærður í fimm ákæruliðum fyrir mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fólksflutninga í tengslum við vændisstarfsemi. Þann 2. júlí var Diddy sýknaður í þremur ákæruliðum en sakfelldur í tveimur liðum fyrir að flytja fólk til vændiskaupenda. Síðustu fréttir af máli hans bárust í ágúst en þá hafnaði dómari því að verða við kröfu tónlistarmannsins um að verða sleppt gegn fimmtíu milljóna dala tryggingu. Hinn 55 ára gamli Combs hefur dúsað í fangelsi allt frá því hann var ákærður í fyrra. Segja Combs ekki sjá eftir brotum sínum Í bréfi sínu til dómara segja saksóknarar að sambærileg brot líkt og þau sem tónlistarmaðurinn hafi verið kærður fyrir hafi leitt til tíu ára fangelsisvistar. Tónlistarmaðurinn hafi beitt ógnarstjórnun og ofbeldi. Þeir segja að hann hafi viðurkennt ábyrgð sína fyrir dómi en haldi því nú fram að fórnarlömb hans beri sína ábyrgð. Ljóst sé því að hann sjái ekki eftir brotum sínum en vilji fórnarlambsvæða sjálfan sig. Verjendur hans hafa farið fram á að hann siti ekki lengur en í fjórtán mánuði í fangelsi. Þeir segja hann þegar hafa þurft að dúsa inni í þrettán mánuði og fullyrða að hann hafi breyst mikið þar sem hann situr nú inni í fangelsi í Brooklyn. Hann sé þar á sjálfsvígsvakt og hafi lært að taka á málum af hinni stökustu ró. Hann átti sig á því að brot hans hafi að megindráttum verið framin vegna eiturlyfjafíknar.
Mál Sean „Diddy“ Combs Erlend sakamál Bandaríkin Hollywood Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira