Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Atli Ísleifsson skrifar 20. september 2025 07:00 Fræðsludeild Húsdýragarðsins hefur ekki haft neina aðstöðu í garðinum fyrir sína starfsemi frá því að gamli bærinn „Hafrafell“ var rifinn niður 2018. Myndin er úr safni. Vísir/Anton Brink Borgarráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt tillögu um að hefja innkaupaferli og framkvæmdir við hina svokölluðu Hlöðu í Fjölskyldu og Húsdýragarðinum og breyta henni í sérstakt fræðslurými. Eftir „rýni í framkvæmdaáætlun“ er heildarkostnaður við verkið nú áætlaður 88 milljónir í stað 115 milljóna. Borgarfulltrúar meirihlutans fagna framkvæmdinni á meðan borgarfulltrúar í minnihluta telji hana vart geta talist forgangsverkefni í núverandi árferði.
Þetta var ákveðið á fundi borgarráðs á föstudaginn. „Hlaðan“ er annar endi svokallaðs Verkfærahúss sem staðsett er mitt á milli dýrahúsanna. Engin aðstaða fyrir fræðsludeildina Í Húsdýragarðinum er starfrækt sérstök fræðsludeild allan ársins hring sem sér um skipulag á fræðslu og móttöku hópa frá leik- og grunnskólum borgarinnar sem og frá frístundaheimilum. Í greinargerð menningar- og íþróttasviðs borgarinnar segir á fræðsludeildin hafi ekki haft neina aðstöðu í garðinum fyrir sína starfsemi frá því að gamli bærinn „Hafrafell“ var rifinn niður 2018. „Hlaðan“ er annar endi svokallaðs Verkfærahúss sem staðsett er mitt á milli dýrahúsanna.Reykjavíkurborg „Uppi voru hugmyndir um byggingu fræðslu og starfsmannahúss sem einnig átti að hýsa frístundaheimili fyrir börn í hverfinu. Sú fjárfesting hefði kostað vel yfir 1,5 milljarð á núverandi verðlagi. Í stað stóra hússins var ákveðið að reyna finna aðrar og ódýrari leið varðandi aðstöðu fyrir fræðsludeildina,“ segir í greinargerðinni. Fræðslurýmið á að vera 71 fermetri að stærð og þá verður ráðist í byggingu 36 fermetra viðbyggingar. Fram kemur að einnig verði hægt að nýta rýmið fyrir sýningar og í almenna útleigu, en gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja framkvæmdir haustið 2025 og sé framkvæmdatími áætlaður níu mánuðir. Hefur hamlað þróun Í bókun borgarfulltrúa meirihlutaflokkanna segir að fræðslustarfsemi garðsins hafi verið órjúfanlegur hluti af menntun reykvískra barna frá stofnun hans og mikilvægt sé að styrkja starfsemina með viðeigandi aðstöðu. „Fræðsludeildin hefur verið án aðstöðu síðan gamli bærinn Hafrafell var rifinn árið 2018, sem hefur hamlað framþróun fræðslustarfs og sumarnámskeiða. Ný aðstaða mun gjörbylta möguleikum til framþróunar fræðslustarfs garðsins, auka framboð sumarnámskeiða og tryggja góða aðstöðu fyrir nemendur. Með þessari fjárfestingu styrkist hlutverk garðsins sem mikilvægs fræðsluseturs um íslensk húsdýr og tengsl manna og dýra. Endurskoðuð kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdin muni kosta 88 milljónir króna,“ segir í bókuninni. Hugmyndir um hvernig fræðslurýmið gæti litið út. Reykjavíkurborg Geti ekki talist forgangsverkefni Sjálfstæðismenn í borgarráði draga hins vegar í efa að framkvæmdin geti talist forgangsverkefni við núverandi árferði í rekstri borgarinnar og almennt ástand á innviðum borgarinnar. Er bent á að jafnframt hafi þegar verið ákveðið að ráðast í gerð nýrrar selalaugar sem kosta muni 150 milljónir króna hið minnsta. „Brýnna væri að verja þessum fjármunum til viðhalds á skólahúsnæði grunn- og leikskóla og samgönguinnviðum svo dæmi séu tekin,“ segir í bókun Sjálfstæðismanna. Rýndu í kostnaðinn Upphafleg kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir að verkið myndi kosta 115 milljónir en í greinargerðinni segir að eftir „rýni í níverandi framkvæmdaáætlun“ hafi verið hægt að endurskoða ákveðna kostnaðarliði þannig að heildarkostnaður er nú áætlaður 88 milljónir króna. Einar Þorsteinsson, borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins, segir í sinni bókun að hann fagni því að ábendingum Framsóknar um upphaflega kostnaðaráætlun verkefnisins hafi verið vel tekið og áformin endurskoðuð. „Framsókn styður að ráðist verði í framkvæmdina til þess að Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn geti betur sinnt fræðsluhlutverki sínu gagnvart börnum og ungmennum.“ Fræðslurýmið á að vera 71 fermetri að stærð og þá verður ráðist í byggingu 36 fermetra viðbyggingar. Margt sem þarf að gera Í greinargerðinni segir að með tilkomu nýrrar fóðurskemmu sem reist var árið 2023 hafi skapast tækifæri til þess að finna ný not fyrir gömlu hlöðuna sem fyrir var í garðinum. Upp hafi komið sú hugmynd að breyta henni í fræðslusetur. „Meðal fyrirhugaðra breytinga á húsnæðinu er ísetning góðra glugga til að hleypa inn birtu, uppsetning loftræstingar, trygging brunahólfa milli svæða, endurnýjun gólfs, einangrun og klæðning innanhúss, lýsing, og endurnýjun lagna. Þá segir að það þurfi að endurnýja þak og tryggja aðgengi í samræmi við núgildandi staðla. Þá stendur til að bæta við lítilli tengibyggingu sem tengir saman húsnæði í garðinum en þar verði lítið anddyri fyrir skólahópa til geymslu útifatnaðar, búnaðargeymsla og köld geymsla fyrir fóðurkæli sem áður var í hlöðunni, en þarf að vera staðsettur í nánd dýrahúsanna,“ segir í greinargerðinni.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Reykjavík Dýr Borgarstjórn Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira