Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. september 2025 07:02 Stefnt var á ferð á fjarlægar slóðir og átti reynslumikill fararstjóri að fylgja hópnum. Það breyttist þegar skráning í ferðina gekk ekki sem skyldi. Unsplash/Gherardo Sava Ferðamaður sem bókaði pakkaferð á fjarlægar slóðir með íslenskri ferðaskrifstofu fær ferðina endurgreidda þótt hann hafi ekki óskað eftir afbókun fyrr en þremur dögum fyrir brottför. Verulegar breytingar sem ferðaskrifstofan gerði á hinni bókuðu ferð veittu ferðamanninum rétt til þess að mati kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.
Málið átti rætur að rekja til ferðar sem farin átti að vera dagana 15. til 27. nóvember 2024. Fréttastofa hefur ekki upplýsingar um hvert ferðinni var heitið en hún var á fjarlægar slóðir. Í upphaflegri auglýsingu var boðið upp á flug, gistingu í tólf nætur, íslenskan fararstjóra og ýmsa þjónustu. Ferðin var kynnt sem hópferð með einum „reynslumesta fararstjóra landsins“. Heildarverð nam 551.900 krónum og hafði ferðamaðurinn greitt þá fjárhæð í tveimur hlutum. Í október 2024 var ferðamanninum tilkynnt að aðeins fimm farþegar hefðu skráð sig í ferðina, að honum meðtöldum, og að íslenskur fararstjóri yrði ekki með í för. Ferðaskrifstofan bauð viðskiptavininum 30 þúsund króna afslátt og svaraði ferðamaðurinn með því að senda bankaupplýsingar í tölvupósti og beiðni um frekari upplýsingar. Þremur dögum fyrir brottför mætti hann svo á skrifstofuna og krafðist afbókunar með fullri endurgreiðslu. Ferðaskrifstofan vísaði til almennra skilmála sinna og taldi breytingarnar á ferðinni heimilar. Þá benti hún á að viðskiptavinurinn hefði ekki mótmælt þeim þegar fyrst var greint frá þeim. Ferðamaðurinn hélt því hins vegar fram að hann hefði ekki fengið nægar upplýsingar um rétt sinn til að afpanta ferðina og að erfitt hefði reynst að ná í starfsfólk ferðaskrifstofunnar. Kærunefndin taldi að breytingin á fararstjórninni hefði falið í sér verulegt óhagræði, sérstaklega þar sem ferðin var til fjarlægs áfangastaðar og fararstjórinn reynslumikli hafði verið stór hluti af auglýsingu ferðarinnar. Þar sem ferðamanninum var ekki kynntur skýr réttur til afpöntunar og afleiðingar þess að svara ekki innan tiltekins frests, taldi nefndin að hann hefði mátt falla frá ferðinni og ætti rétt á endurgreiðslu. Ferðaskrifstofunni var gert að endurgreiða 551.900 krónur ásamt dráttarvöxtum frá 6. febrúar síðastliðnum. Þá skal hún greiða 15 þúsund króna málskostnaðargjald en ferðamaðurinn fær endurgreitt málskotsgjald sitt upp á fimm þúsund krónur. Úrskurðinn má lesa hér.
Ferðalög Neytendur Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira