Bræðraslagur í bikarúrslitaleiknum í ár: „Er alltaf að reyna að ögra mér“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. ágúst 2025 06:31 Dönsku bræðurnir Patrick og Jeppe Pedersen mætast með liðum sínum, Val og Vestra, í úrslitaleik Mjólkurbikar karla í fótbolta á föstudagskvöldð. @mjolkurbikarinn Bikarúrslitaleikur karla fer fram á föstudagskvöldið á Laugardalsvellinum en þarna eru ekki bara Valur og Vestri að mætast heldur einnig dönsku bræðurnir Patrick og Jeppe Pedersen.
Það munar tíu árum á bræðrunum, Patrick er 34 ára og Jeppe er 24 ára. Patrick hefur verið hér á landi meira eða minna síðan árið 2013 eða síðan að Jeppe var aðeins tólf ára gamall. Miðlar Mjólkurbikarsins hita upp fyrir leikinn með léttu viðtali við bræðurna. „Þetta er sérstakt augnablik fyrir mig og bróður minn,“ sagði Patrick Pedersen. „Við vitum þegar að það verður einn bikar í fjölskyldunni. Þetta er samt ekki eitthvað sem þú ert að hugsa um þegar þú ert inn á vellinum,“ sagði Jeppe. „Hann er alltaf að reyna að ögra mér og reyna að komast inn í hausinn minn,“ sagði Patrick og yngri bróðir hans hefur trú á því að liðsfélagarnir í Vestra stöðvi markahæsta leikmann Bestu deildarinnar. „Ég held að við séum með leikmenn sem vita hvernig eigi að taka hann úr umferð og svo þurfum við að gera það af alvöru,“ sagði Jeppe. „Það mun ekki hafa áhrif á minn leik,“ sagði Patrick brosandi. Patrick Pedersen hefur skorað átján mörk í Bestu deildinni og 134 mörk samanlagt í efstu deild. Hann hefur líka skorað þrjú mörk í Mjólkurbikarnum í sumar og átján bikarmörk samanlagt. Jeppe Pedersen hefur skorað eitt mark fyrir Vestra í Bestu deildinni í sumar og er bara 132 mörkum á eftir bróður sínum samanlagt. Jeppe á enn eftir að skora bikarmark á Íslandi. Þeir hafa mæst tvisvar í Bestu deildinni í sumar og skoraði Patrick í báðum leikjunum. View this post on Instagram A post shared by Mjólkurbikarinn (@mjolkurbikarinn)
Mjólkurbikar karla Valur Vestri Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Dagskráin: Generalprufa enska landsliðsins fyrir HM Sport „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings