Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 13. ágúst 2025 10:19 Elín Dís og Sigurður hafa nú þegar fengið húsið afhent. Hjónin Elín Dís Vignisdóttir, hjá blómaverslununinni 4 árstíðir, og Sigurður Kári Árnason skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, hafa fest kaup á 200 fermetra endaraðhúsi við Goðaland í Fossvogi.
Elín Dís og Sigurður greiddu 175 milljónir króna fyrir húsið. Kaupsamningur var undirritaður 3. júlí síðastliðinn. Hjónin hafa nú þegar fengið húsið afhent og hafist handa við að gera það að sínu. Þau seldu nýverið fallega íbúð við Blönduhlíð og má ætla að nýja heimilið verði stórglæsilegt innan tíðar, enda gefur fyrra heimili þeirra glöggt til kynna að þau hafi einstaklega góðan innanhússsmekk. Húsið við Goðaland er sérstakt að því leyti að það er allt á einni hæð, ólíkt flestum raðhúsum í Fossvogi sem eru byggð á pöllum. Það var reist árið 1969 og hannað af Guðmundi Kr. Guðmundssyni arkitekt. Það stendur neðarlega í Fossvogsdalnum, innst í rólegri götu, með stórum suðurgarði, timburverönd, hellulögðum stígum og skjólveggjum. Húsið er 178 fermetrar að stærð og skiptist í forstofu, borðstofu, stofu, eldhús, þvottahús þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Samkvæmt teikningum eru herbergin fimm og auðvelt væri að bæta við auka herbergjum. Auk þess er 22 fermetra bílskúr. Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með mikilli lofthæð, gólfsíðum gluggum og arni. Eldhúsið er rúmgott, með innréttingu frá 1995 og borðkróki. Svefnherbergin eru öll parketlögð og með fataskápum. Útgengt er í garð bæði úr stofu og hjónaherbergi. Skjáskot/Elín Dís
Hús og heimili Fasteignamarkaður Reykjavík Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira