Ráðin nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða Atli Ísleifsson skrifar 7. ágúst 2025 08:08 Catherine Chambers er orðin mikill Vestfirðingur síðan hún flutti 2016 vestur frá Blönduósi og Hólum þar sem hún hafði starfað áður. Háskólasetur Vestfjarða Dr. Catherine Chambers hefur verið ráðin forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða.
Þetta kemur fram á vef Háskólaseturs Vestfjarða en Catherine er með doktorsgráðu frá Háskóla Alaska, Fairbanks frá 2016, meistaragráðu í dýravistfræði frá Southern Illinois Háskóla frá 2008 og bakkalárgráðu frá Drake-háskólanum frá 2004. Þar segir að hún sé með töluverða reynslu af kennslu auk þess að hafa starfað sem leiðbeinandi nema í meistararitgerðum þeirra. „Catherine er með umfangsmikinn birtingarlista fræðigreina, þar má nefna 27 birtar rannsóknargreinar og 5 bókarkafla, en þar að auki hefur hún haldið yfir 50 fyrirlestra bæði á íslandi og erlendis. Hún hefur einnig víðtæka reynslu af að sækja um rannsóknar- og þróunarstyrki og er vel tengd á sviði norðurslóðafræða og haftengdra fræða, en það eru einmitt svið sem Háskólasetur Vestfjarða er sérhæft í. Catherine hefur starfað hjá Háskólasetrinu í meira en tíu ár, fyrst 2013 sem prófdómari og leiðbeinandi, síðan sem stundakennari 2014 og svo sem fagstjóri meistaranáms í Haf- og strandsvæðastjórnun frá 2016. Árið 2020 bauðst Catherine að taka við starfi rannsóknarmanns í virtri Stofnun Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri. Starfinu hefur hún sinnt frá Ísafirði, en hefur jafnframt verið í hlutastarfi hjá Háskólasetri Vestfjarða sem rannsóknastjóri,“ segir í tilkynningunni. Heiður og ánægja Haft er eftir Catherine að það sé sér bæði heiður og ánægja að takast á við þetta nýja hlutverk og halda áfram að byggja upp framsækið háskólastarf á Vestfjörðum, með áherslu á samfélagsþátttöku og kennslu og fræðilegt starf í háum gæðaflokki. „Við vitum að háskólaumhverfi breytist hratt, bæði hér á landi og erlendis. Okkar hlutverk er ekki einungis að bregðast við þessum breytingum, heldur einnig að leiða samtalið um framtíðina og hlutverk þekkingar og menntunar í samfélaginu okkar,“ segir Catherine. Flutti vestur 2016 Catherine situr í stjórn Náttúrustofu Vestfjarða, tilnefnd af Ísafjarðarbæ, og er varaformaður stjórnar Hafna Ísafjarðarbæjar og formaður stjórnar Fulbright á Íslandi. „Hún er virk í rannsóknum og stjórnsýslu rannsókna sem og í faglegri þjónustu innanlands og á alþjóðlega vísu, t.d. í International Arctic Science Committee (IASC) og í International Council for the Exploration of the Sea (ICES) og hefur verið ráðgjafi í stefnumótunarverkefni matvælaráðuneytis. Catherine Chambers er orðin mikill Vestfirðingur síðan hún flutti 2016 vestur frá Blönduósi og Hólum þar sem hún hafði starfað áður. Hún hefur verið virk í foreldrafélagi, hefur starfað sem sundkennari og var sjálfboðaliði í leiklistahópi og þekkir samfélagið á Vestfjörðum vel. Stjórn Háskólaseturs hafði úr að velja fjölda áhugaverðra umsækjenda, en umsækjendur í heild voru sjö. Staðan var auglýst eftir að núverandi forstöðumaður, Peter Weiss, ákvað nú í vor að láta af störfum eftir tuttugu ár í brúnni. Fráfarandi forstöðumaður mun sinna starfinu þar til Catherine tekur við í apríl 2026 eftir að hún kemur til baka úr rannsóknarleyfi sem gestaprófessor við Háskólann í Tókýó,“ segir á vef Háskólaseturs Vestfjarða.
Vistaskipti Skóla- og menntamál Ísafjarðarbær Háskólar Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira