Vertu hress um verslunarmannahelgina með After Party! Artasan 25. júlí 2025 12:06 Félagarnir í Brodies hafa notað After Party töflurnar frá New Nordic. Þeir mæla með að allir eigi töflurnar til um verslunarmannahelgina sem er loks að skella á. „Það sem þetta töfraefni er búið að bjarga okkur félögunum oft, það bættist bara við heill dagur í vikuna eftir að við fórum að taka After Party“ segir Axel Birgis, betur þekktur sem Big Sexy.
Stærsta ferðahelgi ársins nálgast, verslunarmannahelgin sem við flest bíðum spennt eftir. Mörg okkar ferðast út á land og sækja þær fjölmörgu hátíðir sem ganga yfir um helgina víða um land. Yfir þessa stóru ferðahelgi eru heldur margir sem þykja gott að fá sér í glas en áfengi er oft á tíðum stór partur helgarinnar. Áfengi hefur þó margvísleg áhrif á líkama okkar og getum við fundið fyrir allskyns afleiðingum morguninn eftir neyslu þess, en af hverju líður okkur svona og hvað getum við gert til að minnka eða koma í veg fyrir þessi eftirköst? Áfengi getur haft margvísleg áhrif á líkamann Áfengi er oft á tíðum hluti af félagslífi okkar og menningu en áfengi geta fylgt ýmsir ókostir. Notkun áfengis veldur bæði andlegum og líkamlegum breytingum hjá þeim sem þess neyta sem lýsir sér á ýmsa vegu. Áfengi hefur m.a. sljóvgandi áhrif á taugakerfið sem og víkkar æðar í hjartanu sem eykur hjartslátt okkar. Áfengi ýtir einnig undir tíðari klósettferðir sem veldur vökvatapi og þar af leiðandi missum við mikilvæg steinefni úr líkamanum. Við neyslu áfengis finnum við gjarnan fyrir ákveðnum eftirköstum daginn eftir en það köllum við öllu jafna þynnku eða timburmenn. After Party frá New Nordic er sannkallaður þynnkubani! Hvað er þynnka og hvernig getum við komið í veg fyrir hana? Það sem við köllum þynnku er í raun samansafn líkamlegra og andlegra óþæginda sem gera vart við sig eftir neyslu áfengis. Einkenni þynnku geta verið ýmisleg og mismunandi en þau helstu eru mikil þreyta, ógleði, lystarleysi, svimi, skjálfti, þyngsl í höfði og almenn vanlíðan. Þessi þynnka getur verið mismikil hverju sinni en við getum líklega öll verið sammála um að þynnka sé hreinlega leiðinleg og geti gott sem eyðilagt annars góðan dag. Það er eflaust ekki hægt að koma alveg í veg fyrir þynnku, en það má gera ýmislegt til þess að gera þynnkuna bærilegri og líðan þar með betri. Til eru ýmis ráð sem vinna gegn þynnku, svo sem að forðast áfenga drykki á tóman maga, drekka ávallt vatn samhliða áfengi, borða góða fæðu bæði fyrir og eftir áfengisneyslu ásamt því að láta renna af sér fyrir svefninn. Annar afar einfaldur og góður kostur er að taka After Party töflur sem er sannkallaður þynnkubani. Töfraefni að sögn Brodies Þeir Axel, Bjössi, Freyr og Kristófer eða mennirnir á bak við hlaðvarpið Brodies eru eins og mörg okkar vita, miklir stemningsmenn en þeir halda úti þættinum þar sem þeir fá til sín hina ýmsu gesti þar sem allt á milli himins og jarðar er rætt. Við ættum flest að kannast við þá vinina, enda miklir stemningsmenn sem oft á tíðum halda uppi stuðinu á allskyns viðburðum. Þeir hafa verið að notast við After Party töflurnar frá New Nordic og mæla með að allir eigi töflurnar til um verslunarmannahelgina sem er loks að skella á. „Það sem þetta töfraefni er búið að bjarga okkur félögunum oft, maður var vanur að vakna alltaf sami auminginn eftir fjörugt kvöld en svo bættist bara við heill dagur í vikuna eftir að við fórum að taka After Party“ segir Axel Birgis meðlimur Brodies. After Party er fullkomið með í ferðalagið! After Party töflurnar frá New Nordic hafa það að markmiði að vinna á móti vökvatapinu sem á sér stað í líkamanum við áfengisneyslu og koma þannig í veg fyrir kvillana sem fylgja oft daginn eftir. Töflurnar innihalda náttúrulegan kaktus, rósepla extract og amínósýrur ásamt nauðsynlegum vítamínum og steinefnum. Blandan inniheldur einnig öfluga B vítamínblöndu, m.a. B12 vítamín sem stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins, eðlilegri starfsemi taugakerfisins og stuðlar að því að draga úr þreytu og lúa. Taktu 2 töflur með fyrsta drykk og 2 töflur fyrir svefn og njóttu dagsins eftir skemmtilegt kvöld. Vert er þó að taka fram að After Party kemur ekki í veg fyrir áhrif áfengis á líkamann.
Heilsa Mest lesið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Lífið Páskabingó Blökastsins Lífið „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Settu tærnar upp í loft og fengu knús Menning Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Lífið Fleiri fréttir Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Sjá meira