Ofurstjarnan Caitlin Clark ekki með í Stjörnuleiknum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. júlí 2025 07:01 Clark hefur eytt meiri tíma utan vallar en hún myndi vilja á leiktíðinni. Brian Fluharty/Getty Images Caitlin Clark, skærasta stjarna WNBA-deildarinnar í körfubolta, mun ekki taka þátt í stjörnuleik deildarinnar sökum meiðsla. Hún var skráð til leiks í þriggja stiga keppninni og eftirvæntingin mikil enda Clark án efa eitt stærsta nafnið í bandarískum íþróttum í dag.
Hin 23 ára gamla Clark er á sínu öðru tímabili með Indiana Fever og þrátt fyrir að liðið hafi ekki spilað frábærlega á hennar fyrstu leiktíð bar hún af. Það var búist við miklu af Fever í ár en þrálát meiðsli hafa gert Clark og liðinu erfitt fyrir. Vegna meiðsla hefur ofurstjarnan Clark aðeins tekið þátt í 13 leikjum á leiktíðinni. Hún hefur spilað að meðaltali 31 mínútu í leik, skorað 16,5 stig, gefið 8,8 stoðsendingar og tekið 5 fráköst. Clark mun ekki sýna snilli sína í Stjörnuleiknum né þriggja stiga keppninni. Fever greindi frá þessu á samfélagsmiðlum sínum. a message from Caitlin Clark ❤️ pic.twitter.com/zRGZEpqF5R— Indiana Fever (@IndianaFever) July 17, 2025 „Ég er ótrúlega leið og sorgmædd að ég geti ekki tekið þátt. Ég verð að hvíla líkama minn,“ var meðal þess sem Clark sagði í tilkynningunni.
Körfubolti WNBA Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Sjá meira