Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Árni Sæberg skrifar 13. júlí 2025 10:32 Hefð er fyrir því að Reykvíkingur ársins renni fyrir laxi í Elliðaánum. Þessi mynd er úr safni. Vísir/Sigurjón Reykvíkingur ársins 2025 er Ingi Garðar Erlendsson stjórnandi Skólahljómsveitar Vestur- og Miðbæjar. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri tilkynnti valið á bökkum Elliðaár í morgun, en þetta er í fimmtánda sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Reykjavíkurborg segir að Reykvíkingur ársins hafi fyrst verið útnefndur árið 2011. Tilgangurinn sé að leita að einstaklingi sem hefur, með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt og þakka fyrir þeirra framlag. Ingi Garðar hafi stýrt Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar frá árinu 2019.Hann sé básúnuleikari og tónlistarkennari með BA próf og MA próf í tónsmíðum og diplóma í hljóðfræði. Hann sé tónskáld og hafi meðal annars unnið útsetningar fyrir hljómsveitir. Stórkostlegt starf og sannkölluð fyrirmynd Óskað hafi verið eftir tilnefningum um Reykvíking ársins í byrjun maí, og um miðjan júní hafi verið farið yfir tilnefningarnar og tekin ákvörðun um að veita Inga Garðari titilinn. Í tilnefningum hafi meðal annars komið fram að hann haldi úti stórkostlegu starfi og sé sannkölluð fyrirmynd fyrir börnin og þau sem að starfi hljómsveitarinnar koma. Enn fremur segi að Ingi Garðar hafi ávallt mætt nemendum sínum með skilningi og hann skapi umhverfi þar sem börnin eru metin að verðleikum og geti blómstrað sem tónlistarfólk. Undir stjórn Inga Garðars hafi nemendur fengið margskonar tækifæri til þess að koma fram og spila. Þau hafi spilað á sviði í Borgarleikhúsinu í leikritinu Fía Sól gefst aldri upp og einnig í dansverkinu Hringir Orfeausarog annað slúður eftir Ernu Ómarsdóttur. Þau hafi samið tónverk og flutt við opnun tónlistarhátíðarinnar Myrkir Músíkdagar og komið fram með hljómsveitinni Sigur Rós í Laugardalshöll, svo eitthvað sé nefnt. Í lok maí mánaðar hafi svo tónleikar verið haldnir í Háskólabíói þar sem Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar undir stjórn Inga Garðars, Benni Hemm Hemm og Kórinn hafi tekið saman höndum sína í tilefni af því að tuttugu ár voru liðin frá útgáfu fyrstu plötu Benna. Sú plata, sem ber einfaldlega nafnið Benni Hemm Hemm innihaldi tólf lög og kom út árið 2005. Platan hafi verið flutt í heild sinni fyrir fullu húsi á tónleikunum í Háskólabíói. „Goðsagnakennt dæmi“ Haft er eftir Benna Hemm Hemm að það sem Ingi Garðar sé að gera með Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar sé stórvirki og eigi eftir að verða goðsagnakennt dæmi þegar fram líða stundir. „Hann gaf sér mánuð til að æfa upp alla fyrstu Benna Hemm Hemm plötuna, sem er fullkomlega óraunhæft plan fyrir skólahljómsveit. En hann er búinn að þjálfa þessa krakka upp með því að spila linnulaust útum allan bæ - með hljómsveitum, á leiksviði, á elliheimilum, á leikskólum, á vorhátíðum og svona er hægt að telja endalaust. Afraksturinn er sá að þessi hljómsveit getur fengið lög í erfiðum tóntegundum, með sífelldum takttegundaskiptum og ég veit ekki hvað - og spilað bara beint á fyrstu æfingu. Og þau geta ekki bara spilað sig í gegnum lögin, heldur ná þau í örfáum atrennum að finna rétta fílínginn og spila ótrúlega vel. Þetta er flott tónlistarfólk með frábæran stjórnanda.“ Kom mikið á óvart Þá segir að Reykvíkingur ársins hafi að vonum verið ánægður með titilinn. „Útnefningin kom mér mjög á óvart, og það er virkilega ánægjulegt að fá viðurkenningu fyrir starfið sitt og þetta mun örugglega hvetja mig áfram. En þetta er líka gefandi starf og ég vil þakka frábæru krökkunum í skólahljómsveitinni, þau eiga stóran hlut í þessari viðurkenningu ásamt samstarfsfólkinu mínu auðvitað, öllum hljóðfærakennurunum og þá sérstaklega Svanhildi Lóu Bergsveinsdóttur sem er með mér í hljómsveitarstarfinu og mín hægri hönd.“ er haft eftir Inga Garðari. Loks segir að Reykvíkingur ársins hafi rennt fyrir laxi í Elliðaánum í boði borgarstjórans í Reykjavík og Stangveiðifélags Reykjavíkur, sem hafi haft umsjón með ánum í 85 ár. Heiða Björg borgarstjóri hafi rætt við Inga Garðar um skólahljómsveitina og starfsemi sveitarinnar. „Við óskum Inga Garðari til hamingju með útnefninguna!“
Reykjavík Borgarstjórn Stangveiði Tengdar fréttir Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, renndi fyrir laxi í Elliðaánum við opnun ánna í morgun. Síðustu ár hefur verið hefð fyrir því að Reykvíkingur ársins opni árnar með borgarstjóra en samkvæmt svörum frá borginni var hann erlendis og verður því ekki tilkynntur fyrr en í júlí. 20. júní 2025 11:25 Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Fleiri fréttir Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Sjá meira
Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, renndi fyrir laxi í Elliðaánum við opnun ánna í morgun. Síðustu ár hefur verið hefð fyrir því að Reykvíkingur ársins opni árnar með borgarstjóra en samkvæmt svörum frá borginni var hann erlendis og verður því ekki tilkynntur fyrr en í júlí. 20. júní 2025 11:25