Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Kristján Már Unnarsson skrifar 10. júlí 2025 23:33 Rafmagnsflugvélin tekur á loft frá Sønderborg-flugvelli í gær. Sønderborg-flugvöllur Flug lítillar rafmagnsflugvélar í gær frá Sønderborg á sunnanverðu Jótlandi til Kaupmannahafnar þykir marka þáttaskil í dönsku flugsögunni. Fullyrt er að þetta teljist fyrsta græna innanlandsflugið í Danmörku á flugvél sem eingöngu er rafknúin. „
Stór dagur fyrir flugnörda. Stór dagur í flugsögunni,“ segir í fyrirsögn á vef danska ríkisútvarpsins DR þar sem sjá má stutt myndskeið af flugtakinu. Lengra myndskeið má sjá hér. Flugvélin, sem nefnist Beta ALIA CX300, er bandarísk og smíðuð í Vermont. Hún er gerð fyrir einn flugmann og fimm farþega, með 400 kílómetra flugdrægi og flýgur á 280 kílómetra hraða á klukkustund. Rafmagni hlaðið á flugvélina.Sønderborg-flugvöllur Flugið í gær telst þó tilraunaflug en flogið var með frakt en án farþega. Það er liður í lengra reynsluflugi frá París til Stavanger í Noregi þar sem flugvélin mun gangast undir viðamiklar flugprófanir. Sønderborg-flugvöllur vísar til þess í fréttatilkynningu að í nýársræðu þann 1. janúar 2022 hafi forsætisráðherrann Mette Frederiksen hvatt til þess að eigi síðar en á árinu 2025 yrði boðið upp á grænt kolefnislaust flug á innanlandsleiðum í Danmörku. Það hafi núna verið efnt. Flugið frá Sønderborg undirbúið.Sønderborg-flugvöllur „Sønderborg-flugvöllur varð fyrsti flugvöllurinn í Danmörku þar sem 100% rafknúin flugvél fór í reynsluflug á innanlandsleið,“ segir í tilkynningu flugvallarins. Þetta sé mikilvægt skref í átt að grænni flugferðum í Danmörku og Evrópu. Haft er eftir flugvallarstjóranum að það marki upphaf grænna orkuskipta í flugstarfsemi. Flugsérfræðingur, sem danska ríkisútvarpið ræðir við, segir þetta fyrstu innsýn í framtíð flugsins á danskri grundu. Þetta sé þó ekki flugvél sem menn muni sjá fljúga til dæmis á áætlunarleiðum til Álaborgar. Þetta sé frumgerð sem þurfi að þróa og breyta í eitthvað meira. Það sé þó frábært að verða vitni að fyrstu smáskrefunum.
Fréttir af flugi Danmörk Orkuskipti Loftslagsmál Orkumál Tengdar fréttir Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45 Þessi Airbus gæti flogið á íslenskri orku til Oslóar Ráðamenn Airbus hafa ítrekað þá stefnumörkun sína að koma eitthundrað sæta flugvél knúinni mengunarlausu eldsneyti í arðbært farþegaflug á næsta áratug. Þetta kom fram á árlegum fundi forystumanna Airbus á dögunum. 12. apríl 2025 08:50 Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 24. ágúst 2022 06:30 Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti. 8. júlí 2022 22:33 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45
Þessi Airbus gæti flogið á íslenskri orku til Oslóar Ráðamenn Airbus hafa ítrekað þá stefnumörkun sína að koma eitthundrað sæta flugvél knúinni mengunarlausu eldsneyti í arðbært farþegaflug á næsta áratug. Þetta kom fram á árlegum fundi forystumanna Airbus á dögunum. 12. apríl 2025 08:50
Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 24. ágúst 2022 06:30
Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti. 8. júlí 2022 22:33