Hlýnar um helgina Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. júlí 2025 06:18 Súld í dag en bráðum fer að birta til. Vísir/Vilhelm Súld eða dálítið rigning er á vestanverðu landinu í dag með skúrum og rigningu austanlands síðar. Úrkomulítið er á Suðausturlandi og styttir víða upp í kvöld. Hiti er á bilinu 10 til 18 stig og hlýjast suðaustantil.
Á morgun er einnig rigning eða súld öðru hvoru en bjart með köflum austnalands. Samfelld rigning verður suðaustantil annað kvöld og hiti á bilinu 11 til 20 stig, hlýjast norðaustantil. Á Grænlandshafi er smálægð, en þokast austur og beinir suðlægum áttum með vætu til landsins. Þó helst bjart og þurrt fyrir austan framan af degi, en önnur lægð suður af landinu hreyfist norður á bóginn og úrkomusvæði hennar fer yfir austanvert landið. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands fyrir daginn í dag. Lægðirnar fjarlægjast í kvöld og styttir þá víða upp. Suðaustlæg átt og væta með köflum á morgun, en úrkomusvæði nálgast sunnan úr hafi og kemur inn á Suðausturland um kvöldið. Fremur hlýtt í veðri, einkum norðaustanlands. Það hlýnar í veðri um helgina. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðaustlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálítil væta með köflum, bjartviðri austanlands, en fer að rigna þar um kvöldið. Hiti 11 til 19 stig, hlýjast norðaustantil. Á laugardag: Hæg breytileg átt og súld, en þurrt að mestu norðantil. Fer að rigna á sunnantil um kvöldið. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast norðaustanlands. Á sunnudag: Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað að mestu og sums staðar dálítil væta, en yfirleitt bjartviðri á Austurlandi. Fremur hlýtt í veðri. Á mánudag: Norðaustlæg átt, bjart og hlýtt í veðri, en svalara í þokulofti við austurströndina. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir suðaustlæga átt með rigningu, en úrkomuminna fyrir norðan og kólnar dálítið í veðri.
Veður Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Fleiri fréttir Hlýnar um helgina Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Sjá meira