Staðfesta sambandsslitin Atli Ísleifsson skrifar 4. júlí 2025 07:58 Þau Karty Perry og Orlandi Bloom hafa verið saman síðan 2016 og trúlofuðust fyrir sex árum síðan. Nú er hins vegar sambandinu lokið. AP Bandaríska poppstjarnan Katy Perry og enski leikarinn Orlando Bloom hafa staðfest að sambandi þeirra sé lokið. Þau segjast í sameiginlegri yfirlýsingu ætla að einbeita sér að því að ala saman upp fjögurra ára dóttur sína.
Sögusagnir hafa verið uppi síðustu mánuði um að samband þeirra Perry og Bloom væri á enda, en bandarískir fjölmiðlar vísa í sameiginlega yfirlýsingu þeirra í gær þar sem þau staðfesta sambandsslitin. Þau Perry og Bloom hafa verið saman síðan 2016 og trúlofuðust fyrir sex árum síðan. „Þau munu halda áfram að sjást saman sem fjölskylda þar sem forgangsatriði þeirra verður að ala upp dóttur sína með ást, stöðugleika og gagnkvæma virðingu að leiðarljósi,“ segir í yfirlýsingunni. Ennfremur segir að yfirlýsingin hafi verið send út vegna „mikils áhuga og samtala“ varðandi samband þeirra. Hin fertuga Perry og hinn 48 ára Bloom hættu saman árið 2017 en byrjuðu svo saman aftur skömmu síðar og trúlofuðust svo á Valentínusardeginum 2019. Ári síðar opinberaði Perry að hún væri með barni í tónlistarmyndbandinu við lagið Never Worn White. Dóttir þeirra, Daisy Dove, kom svo í heiminn í ágúst 2020. Perry, sem var áður gift bandaríska grínistanum Russell Brand, sló í gegn árið 2008 með laginu I Kissed a Girl, en meðal annara smella hennar eru Roar, California Gurls, Wide Awake og Firework. Leikarinn Orlando Bloom, sem var áður giftur áströlsku fyrirsætunni Miröndu Kerr og á með henni fjórtán ára dreng, sló í gegn í kvikmyndunum um Hringadróttinssögu, en hefur einnig leikið í myndum á borð við Pirates Of The Caribbean og Hobbitanum.
Hollywood Ástin og lífið Tengdar fréttir Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Poppsöngkonan Katy Perry og leikarinn Orlando Bloom eru hætt saman eftir margra ára samband ef marka má dægurmiðla vestanhafs. Síðustu vikur hafa borist reglulegar fréttir af erfiðleikum í sambandi þeirra. 26. júní 2025 10:03 Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Fleiri fréttir Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Sjá meira
Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Poppsöngkonan Katy Perry og leikarinn Orlando Bloom eru hætt saman eftir margra ára samband ef marka má dægurmiðla vestanhafs. Síðustu vikur hafa borist reglulegar fréttir af erfiðleikum í sambandi þeirra. 26. júní 2025 10:03