Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 24. júní 2025 13:19 Húsið hlaut viðurkenningu frá borgarstjóra Reykjavíkur fyrir vandaðar endurbætur árið 2005. Við Laufásveg í Þingholtunum í Reykjavík stendur glæsilegt 267 fermetra einbýlishús á þremur hæðum, reist árið 1903. Húsið er byggt í hinum sígilda sveitserstíl og hefur verið endurnýjað af mikilli natni. Árið 2005 hlaut það sérstaka viðurkenningu frá borgarstjóra Reykjavíkur fyrir vandaðar endurbætur. Ásett verð er 239 milljónir króna.
Húsið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem er sem eitt einbýlishús eða þrjár sjálfstæðar íbúðir með sérinngangi. Í húsinu eru samtals fimm svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Tíðarandinn varðveittur Sveitserstíllinn, sem naut mikilla vinsælda í Evrópu á síðari hluta 19. aldar og fram á 20. öld, einkennist meðal annars af háum sökkli, ríflegri lofthæð, stórum gluggum, útstæðum þakskeggi og skrautmiklum smáatriðum. Við endurnýjunina var lögð sérstök áhersla á að viðhalda sögulegum einkennum hússins. Meðal annars var útlit upprunalegs rafmagnsbúnaðar valið með tilliti til gamla tíðarandans, veggir klæddir að hluta með eikarþiljum, auk þess sem upprunalegir gólfborðar voru endurnýttir. Þrjár hæðir eða ein glæsileg heild Frá norðurhlið hússins er gengið inn á miðhæðina sem skiptist í forstofu og hol sem leiðir inn í rúmgóða stofu og barnaherbergi. Til vinstri er viðbygging með eldhúsi, sem var endurnýjað fyrir tveimur árum, bjartri borðstofu og setustofu með útgengi í gróinn og fallegan garð. Rishæðin er björt og notaleg með fallegu útsýni út í garð og svölum til austurs. Hæðin skiptist í rúmgott alrými, sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Frá suðurhlið hússins er gengið inn í kjallara með fullri lofthæð. Hæðin skiptist í stofu með mögulegri eldunaraðstöðu, svefnrými og baðherbergi með glugga og sturtu. Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.
Hús og heimili Fasteignamarkaður Reykjavík Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira