A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Mania 5. júní 2025 09:57 Ein heitasta kántrýhljómsveit Bretlands í dag Dominic Halpin and the Hurricanes treður upp í Hörpu Allir unnendur kántrýtónlistar ættu að gleðast þegar A Country Night in Nashville kemur í fyrsta skipti til Íslands og heldur tónleika í Eldborg í Hörpu þann 26. september nk. Ein heitasta kántrýhljómsveit Bretlands í dag Dominic Halpin and the Hurricanes munu flytja á tónleikunum mörg af frægustu lögum stærstu kántrý stjarnanna bæði lifandi og liðinna.
Donna Marie og Dominic Halpin á sviði. A Country Night in Nashville kemur beint frá Royal Albert Hall í London og úr metsölu tónleikaferðalag í Bretlandi. Dominic Halpin er einstaklega flottur og sjarmerandi söngvari og mætir í Hörpu ásamt hæfileikaríkri hljómsveit sinni sem munu endurskapa honky-tonk stemmninguna í Nashville og munu fanga orkuna og andrúmsloftið í heimabæ kátrítónlistarinnar. Dominic er breskur söngvari og gítarleikari sem hefur öðlast alþjóðlega frægð og spilað og sungið með stjörnum á borð við Sir Cliff Richard, Tony Bennett og Emeli Sandé auk þess að hafa samið lög fyrir Hollywood kvikmyndir og sjónvarp. Þá hefur hann einnig hljóðritað plötu með fyrrum trommara Elvis Presley. Auk Dominic eru í hljómsveitinni þau Shelly Quarmby (söngur), Donna Marie (söngur/ hljómborð), Ben Wiltshire (bassi), James Walker (trommur) og Matt Wells (gítar / banjó). Ótrúleg veisla af kántrýtónlist Kántrýveislan verður aðeins eitt kvöld í Hörpu. Áhorfendur fara í magnað tónlistarferðalag sem spannar nokkra áratugi með léttleikandi og hjartnæmum söng og hljóðfæraleik með lögum Johnny Cash, Dolly Parton, Willie Nelson, Patsy Cline, The Chicks, Shania Twain og Lady A svo nokkrir séu nefndir. Kántrýtónlist hefur verið á mikilli uppleið aftur í vinsældum á síðustu árum þar sem tónlistarfólk eins og The Shires, Taylor Swift, Lady Antebellum (Lady A) og Beyonce hafa öll komið með sitt innlegg og stíl og kynnt kántrítónlist fyrir risastórum, nýjum og ungum aðdáendahópi. Á dagskrá tónleikanna A Country Night in Nashville eru áhrifamiklir smellir frá mörgum kántrýstjörnum en þar má nefna Ring of Fire, Crazy, Follow Your Arrow, It's Five o'Clock Somewhere, Need You Now, Nine to Five, The Gambler og margir fleiri. Þessi ótrúlega veisla af kántrýtónlist er mögnuð upplifun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Tónleikarnir A Country Night in Nashville verða aðeins eitt kvöld 26. september nk. Á dagskrá tónleikanna A Country Night in Nashville verða áhrifamiklir og þekktir kántrýsmellir. Áhorfendur munu upplifa að þeir séu hreinlega í Nashville ,,Ég hef verið svo lánsamur að kynna A Country Night in Nashville í Royal Albert Hall og það er líklega toppurinn á mínum starfsferli að koma hljómsveit sem þessari í eina frægustu tónlistarhöll heims. Ég þekki vel til hæfileikaríkra tónlistarmanna hljómsveitarinnar sem í bland við glæsileika Eldborgarsals Hörpu munu skapa skemmtilegt og ógleymanlegt kvöld fyrir áhorfendur," segir James Cundall, sem stýrir breska framleiðslufyrirtækinu Jamboree Entertainment sem flytur A Country Night in Nashville til landsins. ,, Dominic Halpin and the Hurricanes flytja lögin með mögnuðum kántrý tónum og upplifun. Hljómsveitin kemur með svo mikla gleði og húmor í sýninguna að áhorfendur munu upplifa að þeir séu hreinlega í Nashville þessa kvöldstund," segir James Cundall ennfremur. Miðar eru nú komnir í sölu og verðið er 5.990-14.990 kr. Hægt er að kaupa miða á harpa.is og tix.is Klippa: A Country Night in Nashville kemur í Hörpu
Tónlist Harpa Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira