Heilög tvenna fyrir hlauparann! Artasan 30. maí 2025 11:02 Í leit að styrkari líkama og meiri orku fékk Sindri Pétursson hlaupari ábendingu um að prófa rauðrófuhylkin og Glúkósamín blönduna frá Natures Aid. Þegar utanvegahlauparinn Sindri Pétursson leggur upp í langar og krefjandi æfingar með Fjallahlaupaþjálfun, skiptir hvert smáatriði máli. Úthald, endurheimt og liðheilsa ráða oft úrslitum, bæði fyrir árangur og ánægju í hlaupinum.
Í leit að styrkari líkama og meiri orku fékk Sindri ábendingu frá öðrum hlaupurum um að prófa rauðrófuhylkin og Glúkósamín blönduna frá Natures Aid, viðbót sem reyndist honum fljótlega ómetanleg. „Ég hef lítið verið að taka inn bætiefni áður, fyrir utan Bio-Kult góðgerla og kreatín, þá var þetta nýtt fyrir mér en Beetroot og Glucosamine frá Natures Aid hafa orðið ómissandi í rútínuna mína,“ segir Sindri um tilkomu þessara bætiefna í sína rútínu. Sindri ákvað að prófa þessar vörur þar sem þær hafa það að markmiði að styðja við endurheimt og aukið úthald, sem er einmitt það sem hann þarf fyrir langar og erfiðar æfingar. „Ég hef verið að taka þetta í um tvo mánuði og hef mjög góða reynslu. Eftir um tvær vikur fann ég sérstaklega meiri kraft í síðari hluta hlaupa. Skrokkurinn tekur vel í þetta og ég hef meiri orku, sérstaklega á löngum og erfiðum æfingum,“ segir Sindri með bros á vör. „Ég finn minna fyrir þreytu og orkan er góð, fyrir, á meðan og eftir æfingar“ Sindri mælir hiklaust með þessari tvennu frá Natures Aid, sérstaklega fyrir alla hlaupara, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. „Ég finn minna fyrir þreytu og orkan er góð, fyrir, á meðan og eftir æfingar. Endurheimtin er betri og ég er alltaf tilbúin í næstu æfingu.“ Krefjandi æfingar kalla á kraft rauðrófunnar „Ég hafði aðeins verið að taka rauðrófusafa fyrir, en það er svo miklu þægilegra að eiga þetta til í töfluformi,“ segir Sindri um tilkomu rauðrófuhylkjanna í sína rútínu. Beetroot frá Natures Aid er 100% náttúrulegt og dagskammturinn, 2 hylki, jafngildir 9.240 mg af rauðrófu. Áhugi á heilsueflandi eiginleikum rauðrófunnar er sífellt að aukast og þá sérstaklega hjá íþróttafólki vegna þess að rauðrófan inniheldur nítröt sem er náttúrulegt efnasamband sem þekkt er fyrir að hafa jákvæð áhrif á súrefnisflæði, orkunýtingu og betra blóðflæði. „Endurheimtin er betri og ég er alltaf tilbúinn í næstu æfingu“ Að bæta súrefnisupptöku og auka blóðflæðið getur haft jákvæð áhrif á snerpu, orku og úthald bæði í daglegu lífi og við æfingar. Þar að auki er rauðrófan stútfull af vítamínum, steinefnum og öflugum andoxunarefnum sem stuðla að betri endurheimt líkamans. Það eru þó ekki allir sem eru jafn hrifnir af bragðinu af rauðrófunni og því er rauðrófuduft í hylkjum tilvalin lausn til að bæta þessari ofurfæðu inn í daglega rútínu. Byrjum strax að passa upp á liðina Liðirnir gegna lykilhlutverki í öllum hreyfingum líkamans. Þeir gera okkur kleift að hreyfa okkur mjúklega og áreynslulaust, með því að tengja saman bein og brjósk. Því skiptir máli að hlúa vel að liðunum og styðja við heilbrigði þeirra, bæði til að viðhalda hreyfigetu og fyrir almenn lífsgæði. „Það sem skiptir máli fyrir mig er að ná betri endurheimt og það hefur þetta klárlega gert.“ Glúkósamín er náttúrulegt efni í líkamanum sem gegnir lykilhlutverki í viðhaldi og endur uppbyggingu liða. Þegar líkaminn þarf aukinn stuðning getur viðbót í formi bætiefna aukið framboð glúkósamíns og stutt við viðgerðarhæfni liðanna. Glúkósamín + Kondrótín formúlan frá Natures Aid sameinar þessi tvö lykilefni, sem bæði eru mikilvæg byggingarefni brjósks og geta haft jákvæð áhrif á liðheilsu. Auk þess inniheldur formúlan engifer, túrmerik og C vítamín sem stuðlar að myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks.
Heilsa Mest lesið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Lífið Páskabingó Blökastsins Lífið „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Settu tærnar upp í loft og fengu knús Menning Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Lífið Fleiri fréttir Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Sjá meira