Erlent

Norð­menn þurfa að taka til­lit til lofts­lagsáhrifa olíu­vinnslunar

Kjartan Kjartansson skrifar
Norskur olíuborpallur í Norðursjó. Skylt er að taka tillit til loftslagsáhrifa þess að olíu og gasi sé brennt við umhverfismat á vinnslunni samkvæmt nýju áliti EFTA-dómstólsins.
Norskur olíuborpallur í Norðursjó. Skylt er að taka tillit til loftslagsáhrifa þess að olíu og gasi sé brennt við umhverfismat á vinnslunni samkvæmt nýju áliti EFTA-dómstólsins. Vísir/EPA

Losun gróðurhúsalofttegunda sem hlýst af bruna á olíu og gasi telst til umhverfisáhrifa olíu- og gasframleiðslu Norðmanna, að mati EFTA-dómstólsins. Norskur dómstóll óskaði eftir álitinu vegna máls sem náttúruverndarsamtök höfðuðu vegna fyrirhugaðrar jarðefnaeldsneytisvinnslu í Norðursjó.

Þrenn náttúruverndarsamtök stefndu norskum stjórnvöldum til þess að freista þess að stöðva fyrirhugaða olíu- og gasvinnslu í Norðursjó. Þau byggja á því að ekki hafi verið tekið tillit til áhrifa vinnslunnar á loftslag jarðar.

Norskur áfrýjunar dómstóll leitaði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins sem kvað í dag upp úr um að losun gróðurhúsalofttegunda sem hlýst af brennslu þeirra sem kaupa olíuna og gasið teljist til umhverfisáhrifa vinnslunnar í skilningi tilskipunar Evrópusambandsins um mat á umhverfisáhrifum.

Áfrýjunardómstóllinn tekur málið fyrir aftur í september.

Ólíkar túlkanir á þýðingunni

Grænfriðungar í Noregi, ein samtakanna sem höfðuðu málið vegna leyfisveitinga fyrir olíu- og gasvinnslu á Yggdrasil, Breiðabliks og Tyrving-svæðunum í Norðursjó, lýsa álitinu sem fullnaðarsigri. Það þýði að það sé ólöglegt að samþykkja nýja gas- og olíuvinnslu án þess að meta loftslagsáhrifin af bruna jarðefnanna.

„Afleiðingar skýrs álits EFTA-dómstólsins eru að það verður að ógilda ákvarðanirnar og að það verður að stöðva ólögleg áhrif áframhaldandi starfsemi þessara linda,“ hefur norska ríkisútvarpið eftir Jenny Sandvig, lögmanni náttúruverndarsamtakanna.

Fulltrúi norska ríkislögmannsins er ekki sammála því. Áliti þýði ekki að leyfin sem voru veitt og deilt er um í dómsmálinu séu óögleg. Áfrýjunardómstóllinn þurfi enn að svara nokkrum lykilspurningum í málinu.

Í áliti dómstólsins kemur fram að landsdómstóli í Noregi sé skylt að koma í veg fyrir ólögmætar afleiðingar þess að ekki var framkvæmt fullt mat á umhverfisáhrifum jarðefnavinnslunnar, að því marki sem unn er samkvæmt landslögum. 

Dómstóll geti ekki heldur veitt afturvirka undanþágu frá þeirri skyldu að meta loftslagsáhrifin. EFTA-dómstóllinn útilokar ekki að hægt sé að vinna umhverfismatið á meðan framkvæmdir standa yfir eða jafnvel eftir að starfsemin sé hafin til þess að uppfylla tilskipunina.

Aftur á móti megi landslög um það ekki veita aðilum tækifæri til að komast í kringum reglurnar. Þá þarf við þær aðstæður að taka tillit til heildarumhverfisáhrifa verkefnis frá því að því er lokið, ekki aðeins framtíðaráhrifa þess.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×