Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er Samúel Karl Ólason skrifar 9. maí 2025 11:14 Tölvuteiknuð mynd af Neutron geimflaug á braut um jörðu. Rocket Lab Forsvarsmenn geimferðafyrirtækisins Rocket Lab hafa gert samning við flugher Bandaríkjanna um að flytja farm með geimflaugum. Þannig á að nota eldflaug til að flytja frá einum stað á jörðinni til annars á einstaklega stuttum tíma, mögulega í neyðartilfellum.
Notast á við Neutron-eldflaugar Rocket Lab en það eru geimflaugar sem hannaðar eru til að lenda aftur á jörðu niðri. Slíka geimflaugar eru til, og má þar helst nefna Falcon 9 flaugar SpaceX, en þær lenda oftar en ekki á sama stað og þeim var skotið á loft eða á drónaskipi undan ströndum Flórída. Starfsmenn Rocket Lab munu vinna að því að þróa tækni til að nota Neutron geimflaugar til að flytja allt að þrettán tonn af hergögnum og/eða birgðum hvert sem er á jörðinni á einungis nokkrum klukkustundum. Sem dæmi má nefna að hægt væri að nota þessa tækni til að senda hergögn eins og skotfæri til umkringdra hermanna hvar sem er í heiminum með litlum fyrirvara. Vonast er til að framkvæma fyrsta tilraunaskotið á næsta ári. We’ve signed a launch contract on Neutron with the @AFResearchLab to test point-to-point global cargo delivery. AFRL’s payload will be launched on Neutron and return to Earth in a demonstration of re-entry capability for future missions.Launching NET 2026. Full details:… pic.twitter.com/GtZDtOuTWn— Rocket Lab (@RocketLab) May 8, 2025 Neutron eldflaugarnar eru hannaðar með aukna samkeppni við SpaceX í huga. Með því að endurnýta geimflaugar er hægt að draga verulega úr kostnaði við geimferðir. Sjá einnig: Rocket Lab ætlar í aukna samkeppni við SpaceX með nýrri eldflaug Í yfirlýsingu frá Rocket Lab segir að samningurinn við flugherinn feli í sér kúvendingu á markaði geimferða og muni bæta hernaðarbirgðanet Bandaríkjanna til muna. Peter Beck, stofnandi fyrirtækisins, segir samninginn til marks um trúa forsvarsmanna flughers Bandaríkjanna á getu Neutron. Geimflaugin muni marka tímamót vegna mikillar getu, lítils kostnaðar og áreiðanleika. Pointy end up ⬆️ Testing is underway and close to completing qualification.This Neutron assembly represents the top of Stage 1 and includes the hungry hippo reusable fairing, canards, and the extended interstage with some of the most complex mechanical systems that exist on the… pic.twitter.com/Mxv9h6XPUm— Rocket Lab (@RocketLab) May 9, 2025 Eftir að eldflauginni er skotið á loft, á nef hennar að opnast og farmurinn sendur af stað. Þá á nefið að lokast aftur fyrir lendingu og þannig á að lenda allri eldflauginni aftur í heilu lagi. Því næst á að vera hægt að fylla aftur á hana eldsneyti, koma fyrir nýjum farmi og vonast sérfræðingar Rocket Lab til að hægt verði að skjóta Neutron aftur út í geim á einum sólarhring. Eldflaugin hefur ekki enn tekið á loft en til stendur að reyna það í fyrsta sinn á þessu ári. Þá á að skjóta eldflaug á loft frá Virginíu í Bandaríkjunum.
Bandaríkin Geimurinn Tækni Hernaður Tengdar fréttir Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Starfsmenn geimferðafyrirtækisins Rocket Lab skutu í kvöld litlu geimfari út í geim, sem nota á til að kanna nýja en í senn mjög gamla tækni. Vísindamenn Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna (NASA) vilja nota þetta geimfar til að kanna hvort hægt sé að sigla um sólkerfið okkar og jafnvel út fyrir það á geislum sólarinnar. 23. apríl 2024 23:18 Bein útsending: Reyna að grípa eldflaug með þyrlu Starfsmenn fyrirtækisins Rocket Lab ætla í dag að reyna að grípa eldflaug með þyrlu. Eldflauginni verður skotið frá Nýja-Sjálandi og á hún að koma smáum gervihnetti á braut um jörðu fyrir sænskt fyrirtæki. 4. nóvember 2022 16:32 Mest lesið Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi Viðskipti innlent Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Viðskipti innlent „Það verður andskoti flókið“ Viðskipti innlent Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Viðskipti innlent Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn Viðskipti innlent Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Viðskipti erlent Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Viðskipti innlent „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðskipti innlent Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Viðskipti innlent Play er gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Burger King opnar fyrsta staðinn á Grænlandi Eigandinn hættir sem forstjóri Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Ben kveður Jerry Nálgast samkomulag um TikTok Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Sjá meira
Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Starfsmenn geimferðafyrirtækisins Rocket Lab skutu í kvöld litlu geimfari út í geim, sem nota á til að kanna nýja en í senn mjög gamla tækni. Vísindamenn Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna (NASA) vilja nota þetta geimfar til að kanna hvort hægt sé að sigla um sólkerfið okkar og jafnvel út fyrir það á geislum sólarinnar. 23. apríl 2024 23:18
Bein útsending: Reyna að grípa eldflaug með þyrlu Starfsmenn fyrirtækisins Rocket Lab ætla í dag að reyna að grípa eldflaug með þyrlu. Eldflauginni verður skotið frá Nýja-Sjálandi og á hún að koma smáum gervihnetti á braut um jörðu fyrir sænskt fyrirtæki. 4. nóvember 2022 16:32