„Þeir vilja náttúrulega fleiri leiki líka“ Smári Jökull Jónsson skrifar 2. maí 2025 22:13 Baldur Þór ræðir við sína menn í kvöld. Vísir/Guðmundur Baldur Þór Ragnarsson þjálfari Stjörnunnar sagði sitt lið ekki hafa gert nægilega vel undir lok leiksins gegn Grindavík í kvöld en hann var jafnframt stóryrtur í garð dómara leiksins. „
Grindavík nær áhlaupi og Kane gerir svakalega vel. Við erum ekki að gera nægilega vel, klikkum á færslum og leyfum honum að hitna. Ekki nægilega gott,“ sagði Baldur um lokakafla leiksins í kvöld í viðtali við Andra Má Eggertsson á Stöð 2 Sport eftir leikinn í Smáranum í kvöld. „Ofan á það, dómararnir með í stemmningunni. Þeir flauta öðru megin og kyngja flautunni hinu megin og því fór sem fór. Þeir vilja náttúrulega fleiri leiki líka,“ bætti Baldur við. Andri Már spurði Baldur nánar út í þessi ummæli hans. „Þeir bara dæmdu öðru megin, „and one“ trekk í trekk og slepptu villum hinu megin. Þannig að þeir voru bara með í stemmningunni, það er bara svoleiðis.“ Hann sagði þó að sínir menn hefðu ekki skotin undir lokin. „Við erum að búa til opin skot hinu megin og klárum þau ekki, þannig að við erum alveg með þetta í okkar höndum. Svona er þessi bolti.“ Andri Már spurði Baldur síðan hvort hann hefði átt að taka leikhlé undir lokin og svo út í oddaleikinn á mánudag. „Já mögulega, ég þarf bara að skoða það. Nú er bar endurheimt, fara yfir þennan leik og vinna svo næsta leik.“
Bónus-deild karla UMF Grindavík Stjarnan Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Sjá meira