Sindri og Védís Hervör til Kópavogsbæjar Atli Ísleifsson skrifar 2. maí 2025 12:15 Sindri Sveinsson og Védís Hervör Árnadóttir. Kópavogsbær Védís Hervör Árnadóttir hefur verið ráðin stjórnandi nýrrar skrifstofu umbóta og þróunar hjá Kópavogsbæ. Þá hefur Sindri Sveinsson verið ráðinn áhættu- og fjárstýringarstjóri hjá Kópavogsbæ.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ en stöðurnar koma til í tengslum við skipulagsbreytingar á stjórnsýslu bæjarins en í þeim felst meðal annars að nýjar skrifstofur verða til í stað stjórnsýslu- og fjármálasviðs. „Védís Hervör Árnadóttir hefur verið ráðin stjórnandi nýrrar skrifstofu umbóta og þróunar hjá Kópavogsbæ. Védís hefur starfað sem forstöðumaður miðlunarsviðs í stjórnendateymi Samtaka atvinnulífsins frá árinu 2020. „Það er mikill heiður að fá að leiða nýja skrifstofu umbóta og þróunar með öflugu teymi. Hún verður vettvangur framsækinna lausna með áherslu á stafræna umbreytingu, gagnadrifna markaðssetningu og iðandi menningarlíf. Með einföldun ferla og nýtingu samlegðaráhrifa má auka skilvirkni og þjónustu og þannig standa vörð um sterka stöðu Kópavogs með umbótum sem skila sér í auknum lífsgæðum íbúa,“ segir Védís. „Skrifstofa umbóta og þróunar mun spila lykilhlutverk í framþróun Kópavogsbæjar. Við ætlum að stíga markviss skref í að efla þjónustu við íbúa með aukinni stafrænni þjónustu. Védís á að baki farsæla stjórnenda- og rekstrarreynslu. Það er mikill fengur að fá svo öflugan stjórnanda með ferska sýn, en það er einmitt það sem ný skrifstofa þarfnast,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs. Védís leiddi innri og ytri markaðsmál SA á miklum umbótatímum sem fólu meðal annars í sér stafvæðingu ferla og endurmörkun. Þar áður starfaði Védís í stjórnendateymi Viðskiptaráðs Íslands. Auk áratuga stjórnendareynslu í íslensku atvinnulífi hefur hún fjölbreytta reynslu úr nýsköpunargeiranum en hún leiddi meðal annars brautryðjendastarf í íslenskri mál- og menntatækni í gegnum stafvæðingu hins margverðlaunaða Lærum og leikum með hljóðin sem síðar varð Kids Sound Lab í staðfærslu kóðans á erlendri grundu. Þá var Védís markaðsstjóri Vinunar, þjónustufyrirtækis fyrir fatlað fólk, langveika og aldraða þegar yfirfærsla ríkis til sveitarfélaga átti sér stað í málefnum fatlaðs fólks. Védís hefur látið til sín taka í menningargeiranum sem tónlistarkona frá unglingsaldri. Hún er varaformaður Félags tónskálda og textahöfunda og stjórnarmaður í Tónskáldasjóði RÚV og STEFs. Hún hefur setið um árabil í stjórnum Leikfélags Reykjavíkur og Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar og var fyrsti formaður KÍTÓN. Einnig hefur hún unnið að handritagerð og framleiðslu, þar á meðal sem meðeigandi Freyja Filmworks um hríð. Védís á að baki fjölbreytta reynslu af nefndar- og stjórnarstörfum innan atvinnulífsins og opinberrar stjórnsýslu og hefur stýrt fjölda umbótaverkefna. Nýlega stýrði hún starfshópi um málefni Salarins í Kópavogi sem skilaði úrbótatillögum að nýju rekstrarmódeli tónleikahússins. Védís Hervör Árnadóttir er með Executive MBA meistaragráðu í stjórnun, stefnumótun og rekstri frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í mannfræði með áherslu á atferlishagfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig sótt sér frekari þekkingu og símenntun á sviði markaðsfræða og verkefnastjórnunar, meðal annars í gegnum námskeið og diplómur. Sindri verður áhættu- og fjárstýringarstjóri Sindri Sveinsson hefur verið ráðinn áhættu- og fjárstýringarstjóri hjá Kópavogsbæ. Sindri hefur starfað hjá Kópavogsbæ frá árinu 2009. Hann hefur frá 1.mars síðastliðnum gegnt starfi deildarstjóra greiningardeildar á skrifstofu áhættu- og fjárstýringar en var áður rekstrarstjóri menntasviðs Kópavogsbæjar. „Það er mér mikill heiður að taka við nýju starfi áhættu- og fjárstýringarstjóra Kópavogsbæjar. Traustur rekstur og ábyrg fjármálastjórnun eru gríðarlega mikilvægar áherslur í stóru sveitarfélagi. Ég hlakka því til að takast á við spennandi verkefni og þær áskoranir sem bíða í samstarfi við öflugan hóp starfsmanna á skrifstofu áhættu- og fjárstýringar.“ segir Sindri. “Kópavogsbær er stækkandi sveitarfélag í fremstu röð. Nú sem fyrr verða áherslur á ábyrga fjármálastjórn enda forsenda þess að unnt sé að veita framúrskarandi þjónustu til bæjarbúa. Sindri hefur mikla þekkingu á rekstri sveitarfélagsins. Sú reynsla, ofan á farsælan bakgrunn í áhættu- og fjárstýringu og ekki síst upplýsingamiðlun þeirra gagna, mun reynast dýrmætt veganesti fyrir þá vegferð sem Kópavogsbær er á.” segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs. Í starfi sínu sem rekstrarstjóri hefur Sindri meðal annars annast gerð fjárhagsáætlunar, sinnt rekstrareftirliti, frávikagreiningu sem og ýmiss konar gagnagreiningu, ráðgjöf og upplýsingamiðlun. Áður en Sindri hóf störf hjá Kópavogsbæ starfaði hann sem sérfræðingur á verðbréfasviði Landsbankans, þar sem hann vann að greiningum fjárfestingatækifæra á innlendum og erlendum mörkuðum og fjárfestingum í hlutabréfum. Sindri Sveinsson er viðskiptafræðingur með sérhæfingu í fjármálum. Hann lauk M.Sc. gráðu í fjármálum árið 2005 frá viðskiptaháskólanum í Lundi í Svíþjóð, auk þess sem hann hefur B.Sc. próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur einnig sótt sér frekari þekkingu á sviði kerfisfræði, upplýsingatækni og gagnavinnslu, meðal annars í gegnum námskeið hjá HR og Háskóla Íslands, auk símenntunar í notkun Power BI og greiningartækni,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Kópavogur Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira