Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Jakob Bjarnar skrifar 30. apríl 2025 16:18 Landsmenn vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið eftir Kveiksþáttinn í gær þar sem greint var frá umsvifamiklum persónunjósnum á vegum Björgólfs Thors Björgólfssonar fjárfestis. Spaugstofan er í startholunum. Pálmi Gestsson leikari segir að oft hafi Spaugstofumenn klæjað í lófana að komast í hin og þessi málin en sjaldan sem nú.
Njósnamál Björgólfs Thors Björgólfsson fjárfestis, sem greint var frá í Kveik í gær hefur kallað fram gríðarleg viðbrögð og menn vita ekki hvort þeir eigi að hlæja eða gráta. Áfellisdómur fyrir lögregluna Eins og fram kom í umfjölluninni tóku þrír lögreglumenn, ýmist nýhættir eða enn við störf, að sér fyrir Björgólf Thor Björgólfsson að njósna um hóp fólks, sem hafði stefnt honum. Jón Óttar Ólafsson og Guðmundur Haukur Gunnarsson, sem er nú látinn, stofnuðu fyrirtækið PPP sem tók verkið að sér. Báðir störfuðu enn sem lögreglumenn þegar fyrirtækið var stofnað. Lúðvík Kristinsson mótorhjólalögga tók einnig þátt í njósnunum, á vinnutíma hjá lögreglunni. Að sögn Bergþóru Höllu Björnsdóttur lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu er búið að senda málið til ríkissaksóknara. Og á meðan hefur vinnuskylda Lúðvíks verið afþökkuð. Hvað verður um samning hans við lögregluna mun ráðast af niðurstöðu dómsins. Málið fór algerlega framhjá Stefáni Eiríkssyni á sínum tíma Kaldhæðnislegt má heita að málið tekur til þess tíma sem Stefán Eiríksson, nú Útvarpsstjóri, var lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. RÚV hefur greint frá því að nefnd sem hefur eftirlit með störfum lögreglunnar líti málið alvarlegum augum. Það segir Margrét Einarsdóttir lagaprófessor og formaður nefndarinnar. „Nú er refsiréttarhlið þess er í eðlilegum farvegi hjá ríkissaksóknara en nefndin hefur ákveðið að kalla eftir gögnum strax í dag og við munum samhliða taka málið til meðferðar nefndarinnar,“ segir hún. Ekki næst í Björgólf Thor til að leita viðbragða hans við þættinum. Ragnhildur Sverrisdóttir var talsmaður hans hér á landi fyrir margt löngu en hún hætti. Svo mun einnig vera um Björk Eiðsdóttur sem er horfin til starfa hjá Icelandair. Helsti kontakturinn er Samantha hjá Novator úti á Englandi en hún svarar engum póstum.getty Fréttastofa hefur gert ítrekaðar tilraunir til að ná sambandi við Björgólf Thor til að fá fram viðbrögð hans en án árangurs. Landsmenn vita hins vegar varla hvað þeim á að finnast. Þess sést staður á samfélagsmiðlum. „Oft hefur okkur Spaugstofumenn klæjað í lófana að komast í hin ýmsu mál sem hafa gerst í íslensku samfélagi síðan við hættum. Nú held ég geti fullyrt að við séum allir með ofsakláða!“ segir Pálmi Gestsson í status sem hefur fengið gríðarleg viðbrögð. En þar merkir hann þá Karl Ágúst Úlfsson, Sigurð Sigurjónsson, Örn Árnason og Randver Þorláksson. Fjölmargir taka þessari hugmynd fagnandi og vilja gjarnan sjá Spaugstofuna fjalla um málið. Raunverulegur yfirgangur auðgreifa Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður og rithöfundur veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta: „Vissulega var sú saga sem Helgi Seljan og félagar sögðu í Kveik í gærkvöldi hlægileg. En við verðum að gæta þess að láta háðsglósur vegna kauðagangsins í Kókómjólkur-njósnurunum ekki byrgja okkur sýn á það hve stórkostlega alvarlegt mál þetta er í rauninni. Það sýnir hve auðgreifar eru tilbúnir til að seilast langt til að gæta hagsmuna sinna og á hve skítugum skóm þeir telja sjálfsagt að vaða yfir annað fólk. Það sýnir að hér þrífst raunveruleg spilling og raunverulegur yfirgangur auðgreifanna. Það á reyndar ekki að koma okkur á óvart þessa dagana.“ Ýmsir segja reyndar í athugasemdum við færslu Illuga að þeim sjái fátt eitt fyndið við þetta. En fólk veit ekki almennilega hvort það er að koma eða fara. Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir veltir þó fyrir sér hvað þurfi til að gerast einkaspæjari: „Vilji maður verða einkaspæjari er best að sækja menntun sína hjá Sérstökum saksóknara. Ætli námið sé lánshæft?“ Djákninn Guðmundur Brynjólfsson telur áhersluna vera á aukaleikara í málinu: „Mér sýnist öll umræðan snúast um hlaupatíkurnar en ekki glæpamennina sem réðu þær í vinnu. Þetta er sama saga og í fíkniefnainnflutningi þar eru burðardýrin ávallt í kastljósinu.“ Ísland - bezt í spillingu Og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir talsmaður Kára Stefánssonar hjá Íslenskri erfðagreiningu segir að nú liggi fyrir hljóðupptökur af því þegar lögmanni Novator er gerð grein fyrir því að lögreglumaður í starfi vinni að þessum persónunjósnum sem um ræðir. „Hlýtur það ekki að blasa við að það sé ólöglegt að bera mútur á lögreglumann í opinberu starfi og fá hann til að misnota aðstöðu sína. En það er því miður erfitt að treysta lögum eins og í pottinn er búið. Þessir menn, áttu hvert bein í ákveðnum stjórnmálamönnum, keyptu upp hálfa lögmannastéttina og nú er komið í ljós að löggurnar voru líka á launaskrá hjá þeim.“ Þóra Kristín segir þetta bara toppinn á ísjakanum. „Þær njósnir og þau lögbrot sem við fáum að vita um. Litla sæta og saklausa Ísland. Bezt í spillingu.“
Samfélagsmiðlar Facebook Lögreglan Lögreglumál Gögnum stolið frá héraðssaksóknara Mest lesið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Eva Marie Saint er látin Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira