Innlent

Bensín­verð hafi ekki lækkað í sam­ræmi við verð á heims­mörkuðum

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Vísir/Vilhelm

Formaður félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að bensín- og olíuverð á Íslandi hafi tilhneigingu til þess að fara hratt upp en hægt niður. Heimsmarkaðsverð á olíu hafi lækkað um fjögur prósent á síðasta mánuði en meðalverð á Íslandi lækkað um 0,9 prósent á sama tíma.

Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda, var til viðtals í Reykjavík síðdegis fyrr í vikunni þar sem hann var spurður að því af hverju bensín- og líuverð hefði ekki lækkað á Íslandi í samræmi við veika stöðu Bandaríkjadollars og lækkandi heimsmarkaðsverði á olíu.

Eiga neytendur inni lækkun á olíu- og bensínverði?

„Já þetta er eins og við höfum áður farið yfir, skattar í ríkissjóð eru mjög hátt hlutfall í verði sem neytendur borga fyrir eldsneyti, það er yfir helmingur, en svo er það álagning olíufélaga og svo er það innkaupsverðið.“

Verðið lækkað á Norðurlöndunum

Runólfur segir að verð hafi almennt verið að lækka til neytenda á Norðurlöndunum. Svipuð verðþróun hafi átt sér stað hjá Costco á Íslandi, en hin félögin hafi verið seinni til og latari á einhvern hátt.

„En við erum að sjá að síðustu þrjátíu daga hefur meðalbensínverð lækkað um 0,9 prósent. Heimsmarkaðurinn hefur lækkað vel yfir 4 prósent að teknu tilliti til gengis Bandaríkjadals.“

Verðlækkunin hjá Costco á Íslandi síðustu þrjátíu daga hafi verið þrjú prósent.

Það er meira í takt við heimsmarkaðsverðið?

„Já þeir eru svona að fylgja kúrvunni sem við sjáum í nágrannalöndunum okkar.“

Runólfur segir að í gegnum tíðina hafi olíufélögin hér á landi yfirleitt ekki beðið lengi með að hækka verðið þegar hækkun verður á heimsmarkaði.

„Já það er því miður þannig. Það hefur meira að segja verið sýnt fram á það með veigamikillirannsókn hjá Samkeppniseftirlitinu, að verðið hefur tilhneigingu til þess að fara hratt upp en hægt niður

„Það er eins og einhver lýsti því í ákveðinni fræðibók, það er eins og raketta upp en niður eins og fjöður.“

Útskýringarnar á þessu snúist yfirleitt um birgðarstöðu.

„Einhvernveginn virðast menn bæði vera með vond innkaup þegar verð hækkar en líka vond innkaup þegar verð lækkar.“

„Ég ætla ekki að segja það að innkaupastjórarnir hjá olíufélögunum séu ekki starfi sínu vaxnir. Ég held það sé bara skortur á samkeppni, þessi fákeppnismarkaður hann örvar fólk ekki til dáða því miður,“ segir Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×