Neytendur

Rukka í „rennuna“ á flug­vellinum

Jón Þór Stefánsson skrifar
Nú verður dýrara að hangsa í „rennunni“
Nú verður dýrara að hangsa í „rennunni“ Vísir/Vilhelm

Ákveðið hefur verið að rukka í hina svokölluðu „rennu“ á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia, en gjaldskyldan mun hefjast 4. mars næstkomandi, en það mun vera frítt að fara í gegnum hana taki það mann fimm mínútur eða minna.

„Rennan er ætluð þeim sem þurfa að aka upp að flugstöðinni og stöðva í stutta stund til þess m.a. að hleypa út farþegum eða losa farangur. Nokkuð hefur verið um að bílstjórar hafi lagt bílum í rennunni í lengri tíma, sem stíflar flæði umferðar og getur heft aðgengi farþega og viðbragðsaðila,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir að markmið breytingarinnar sé að tryggja öllum sem, eru til dæmis að skutla farþegum á flugvöllinn, skjótt og öruggt aðgengi. Það verði gert með því að taka gjald af þeim sem dvelja lengur en fimm mínútur í „renunni“.


Gjaldskráin verður eftirfarandi:

Fyrstu 5 mínúturnar: Frítt

Hver mínúta eftir það: 500 kr.

Sólarhringur: 50.000 kr.

1.490 kr. þjónustugjald bætist við greiðslu-skuld ef ekki er greitt innan 48 klukkustunda.


„Til að koma til móts við farþega höfum við lengt gjaldfrjálsa tímann á P2 skammtíma bílastæðunum komu megin við flugstöðina úr 15 mínútum í 30.“

Fram kemur að á degi hverjum sé 1500 til 1700 bílum ekið í gegnum „rennuna“ á degi hverjum. Umferðin sé mest á álagstíma, og því megi lítið út af bregða til að tafir verði og biðraðir myndist.

„Athugun á notkun rennunnar yfir rúmlega mánaðar tímabil sýnir að dvalartími um 8% bíla er á bilinu 16-20 mínútur. Það hefur heft flæði í gegnum hana og leitt til biðraða sem valda öðrum gestum flugvallarins óþægindum. Til að sporna gegn þessu og stuðla að bættu flæði um rennuna verður tekið upp gjald á þau ökutæki sem eru lengur en fimm mínútur,“ segir í tilkynningunni.

„Langflestir ökumenn nýta rennuna eins og til er ætlast og stöðva bíla sína þar einungis í örskamma stund. Miðgildi dvalartíma er um tvær og hálf mínúta og um 80% bíla eru 5 mínútur eða skemur í rennunni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×