Atvinnulíf

Breytingar í framkvæmdastjórateymum oft nauð­syn­legar

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er hætt við því að ekki sé skipt út í framkvæmdastjórateymum vegna þess að fyrri árangur er svo góður. En hvernig lítur morgundagurinn út? Og hvaða vísbendingar geta forstjórar horft til sem merki um að nú sé mögulega kominn tími á að skipta út í stjórnendateyminu?
Það er hætt við því að ekki sé skipt út í framkvæmdastjórateymum vegna þess að fyrri árangur er svo góður. En hvernig lítur morgundagurinn út? Og hvaða vísbendingar geta forstjórar horft til sem merki um að nú sé mögulega kominn tími á að skipta út í stjórnendateyminu? Vísir/Getty

Í íþróttunum er ekkert óalgengt að við sjáum tíð skipti á þjálfurum. Enda ekkert sem segir að sá sem eitt sinn taldist besti þjálfarinn fyrir liðið, sé endilega sá besti fyrir komandi tíma og misseri.

Það sama á við um framkvæmdastjórateymin; Þar þarf stundum að skipta út stjórnendum. Þótt viðkomandi hafi staðið sig frábærlega, átt mikinn þátt í þeirri velgengni sem hefur náðst, er á besta aldri og vel liðinn.

En er nú einfaldlega kominn á tíma sem rétti stjórnandinn.

Sem getur verið erfið staða fyrir forstjóra eða æðstu stjórnendur að horfast í augu við. Því oft blindar það okkur, að horfa á þann árangur sem hefur náðst í stað þess að horfa til þess árangurs sem nú þarf að nást.

Það sem forstjórar og stjórnir þurfa hins vegar að horfa til er að sá sem er í brúnni og/eða að fólkið í framkvæmdastjórnarhlutverkunum, séu bestu einstaklingarnir fyrir morgundaginn, óháð gærdeginum. Þetta á auðvitað jafnt við um forstjórann sjálfan og framkvæmdastjórateymið.

Í dag ætlum við hins vegar að rýna í vísbendingar sem hver um sig geta verið merki um að nú sé kominn tími til að skipta einhverjum út í framkvæmdastjórateyminu.

Minni metnaður í ráðningum

Það er oft sagt að góður stjórnandi leitist við að vera með fólk í kringum sig sem er betri en hann/hún sjálfur. Enda hræðist sterkur leiðtogi það ekki að vera með besta fólkið í kringum sig; þvert á móti, falast bestu stjórnendurnir eftir því að ráða inn fólk sem er líklegt til að bæta við þekkingu eða reynslu við stjórnandann sjálfan og liðsheildina.

Þegar ráðningar stjórnanda byggja mest á að ráða fólk með þekkingu og reynslu sem þegar er til staðar, þarf mögulega að endurmeta stöðu stjórnandans sjálfs.

Framsýnin virðist þverrandi

Stjórnandi á að vera framsýnn og hluti af starfi stjórnandans er að horfa alltaf til framtíðar. Þannig leiðir stjórnandinn á stefnumótandi hátt. Þegar þessi framsýni virðist þverrandi, aukast líkurnar á að oftar þurfi að slökkva brennandi elda eða að viðkomandi sé í sífellu að bregðast við vandamálum.

Teymið ekki með skýra sýn

Ef sú staða kemur upp að teymi stjórnandans virðist varla vita í hvaða átt er verið að fara, er komin sterk vísbending um að nú sé tími til að skipta út stjórnandanum. 

Nær ekki að stækka með félaginu

Sú staða getur líka komið upp að stjórnandi sem átti stóran þátt í vexti og velgengi félagsins, stækkar einfaldlega ekki með fyrirtækinu. Umhverfið breytist líka þegar fyrirtæki stækka. Sumt verður flóknara og þyngra í vöfum en áður og svo framvegis. Fyrir suma stjórnendur þýðir þetta einfaldlega að vinnuumhverfið sem áður var, átti betur við viðkomandi.

Önnum kafinn en staðnaður

Stjórnandi þróast í sínum verkefnum og störfum. Enda eðlilegt því það er alltaf verið að horfa til framtíðar. Stjórnandi sem sýnir merki um að geta ekki úthlutað verkefnum, er líklegur til að staðna. 

Þú ert rekinn….. á samt ekkert endilega við

Þótt fyrrgreindar vísbendingar séu augljós merki um að nú þurfi að bregðast við, er ekki þar með sagt að fyrsta skrefið eigi að vera að segja viðkomandi stjórnanda upp.

Nei, fyrst og fremst þarf að setjast niður í samtalið og endurgjöfina.

Forstjórinn þarf líka að hafa hugrekkið til að líta í eiginn barm; Er eitthvað við þeirra eigin stjórnarhætti sem þarf að laga? Er stefnan óskýr? Eða eru væntingarnar til stjórnandans óskýrar? 

Eða hefur kannski eitthvað breyst, sem gerir það að verkum að það sem einu sinni þurfti hvað mest, þarf ekki lengur? Hvers konar framkvæmdastjóri væri besti þjálfarinn fyrir komandi tíma og áskoranir?


Tengdar fréttir

„Þar eru leiðtogar sem virðast hafa eitthvað extra“

„Það gerist oft í krísum að við áttum okkur á því að mögulega þarf vinnustaður að breyta vinnustaðamenningunni. Því það er í krísum sem við áttum okkur á því hvað hjá okkur er ekki að virka,“ segir Eyþór Eðvarðsson stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun.

Leiðtogaþjálfun: „Þetta er eins og taka til í geymslunni“

„Þetta er eins og taka til í geymslunni; henda út hlutum sem við viljum ekki nota og setja inn nýtt,“ segir Jón Jósafat Björnsson meðal annars um þau tuttugu atriði sem eru nefnd sérstaklega í leiðtogaþjálfun Dale Carnegie, sem unnið var í samvinnu við Marshcall Goldsmiths.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×