Innlent

Lítið sem ekkert flug fram­undan

Jón Þór Stefánsson skrifar
Næstum því öllum flugum hefur verið aflýst.
Næstum því öllum flugum hefur verið aflýst. Vísir/Vilhelm

Rúmlega fimmtíu komum og brottförum á Keflavíkurflugvöll hefur verið aflýst í dag. Þetta kemur fram inn á vef flugvallarins.

Um er að ræða 21 brottför og 32 komur. Svo virðist sem allar komur á völlinn frá og með klukkan 11 í dag hafi verið aflýst og öllum brottförum eftir klukkan 12.

Í raun er einungis tvær flugferðir sagðar á áætlun. Það eru flug með Wizz Air, til og frá Katowice í Póllandi í kvöld. Annars hefur öllum flugum hjá Icelandair og Play aflýst.

Vont veður er í kortunum, en spáð er hvassviðri, stormi og rigningu og asahláku.

„Vegna veðurs verður röskun á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli og um innanlandsflugvelli frá föstudeginum 31. janúar til og með sunnudeginum 2. febrúar,”


Tengdar fréttir

Sextíu flugferðum aflýst

Hvassviðri sem gengur yfir landið mun hafa áhrif á flugáætlun Icelandair seinni partinn á morgun, 31. janúar. Flug til Evrópu í fyrramálið er á áætlun en raskanir eru á flugi til Íslands frá Evrópu eftir hádegið á morgun og einnig flugi sem er á áætlun til Norður-Ameríku og Evrópu síðdegis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×