Innlent

Missti stjórn á bílnum og rakst utan í tvo

Jón Þór Stefánsson skrifar
Mynd frá vettvangi.
Mynd frá vettvangi.

Þriggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi í dag, skammt frá brúnni um Víkurveg sem skilur að Grafarvog og Grafarholt.

Ökumaður missti stjórn á bíl sínum í krapa og hálku, snerist í hringi, og rakst utan í tvo bíla. Engin slys urðu á fólki.

Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.

„Stundum er Vesturlandsvegur óheppinn,“ segir Árni, en uppúr hádegi í dag hefur lögreglu verið tilkynnt um fimm umferðarhöpp á Vesturlandsvegi, en lítið sem ekkert hefur verið tilkynnt um óhöpp annars staðar. Einn hefur verið fluttur á sjúkrahús í þessum málum, en ekki er talið að um alvarlega áverka sé að ræða.

Í öllum málunum spilaði veðrið inn í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×