Sport

Dag­skráin í dag: Bónus deild karla, Evrópudeildin, golf og Ron­aldo

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Manchester United er í beinni.
Manchester United er í beinni. Clive Rose/Getty Images

Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag.

Stöð 2 Sport

  • Klukkan 18.55 hefst GAZið. Þar verður hitað upp fyrir leiki kvöldsins í Bónus-deild karla í körfubolta.
  • Klukkan 19.10 er Skiptiborðið á dagskrá. Verða þar allir leikir kvöldsins í beinni á einum og sama staðnum.
  • Klukkan 21.10 eru Tilþrifin á dagskrá. Þar verður farið yfir allt það helsta úr leikjum kvöldsins.

Stöð 2 Sport 2

  • Klukkan 19.50 er leikur Tottenham Hotspur og Elfsborg í Evrópudeildinni á dagskrá. Eggert Aron Guðmundsson er að öllum líkindum í leikmannahóp gestanna. Júlíus Magnússon er það hins vegar ekki þar sem hann hefur ekki verið skráður í Evrópudeildarhóp liðsins sem stendur.

Stöð 2 Sport 3

  • Klukkan 19.50 tekur Real Sociedad á móti PAOK í Evrópudeildinni. Landsliðsframherjinn Orri Steinn Óskarsson gæti fengið tækifæri í byrjunarliði Sociedad eftir slæmt gengi liðsins undanfarið.

Stöð 2 Sport 4

  • Klukkan 08.30 DB World-mótaröðin í golfi á dagskrá. Klukkan 16.30 er komið að LPGA-mótaröðinni.

Stöð 2 Sport 5

  • Klukkan 19.20 er leikur Grindavíkur og Stjörnunnar í Bónus deild karla á dagskrá.

Stöð 2 Sport 6

  • Klukkan 19.50 er leikur Rangers og Union SG í Evrópudeildinni á dagskrá.

Vodafone Sport

  • Klukkan 16.55 er leikur al Raed og Al Nassr í efstu deild karla í fótbolta í Sádi-Arabíu á dagskrá. Cristiano Ronaldo spilar með Al Nassr.
  • Klukkan 19.50 er leikur FCSB og Man United í Evrópudeildinni á dagskrá.
  • Klukkan 00.05 er leikur Bruins og Jets í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.

Bónus deildin

  • Klukkan 19.10 hefst útsending GAZ-ins frá leik Vals og Njarðvíkur.

Bónus deildin 2

  • Klukkan 19.10 hefst útsending úr Breiðholti þar sem ÍR fær Álftanes í heimsókn.

Bónus deildin 3

  • Klukkan 19.10 hefst útsending frá Egilsstöðum þar sem Tindastóll sækir Hött heim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×