Kristrún upplýst um fundinn með skömmum fyrirvara Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. janúar 2025 13:49 Ráðherrarnir funduðu fyrst í danska forsætisráðuneytinu og borðuðu svo kvöldmat heima hjá Mette. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands var látin vita af skyndifundi forsætisráðherra Norðurlandanna í Kaupmannahöfn sem fram fór í gær um Grænland og öryggismál sama dag og fundurinn var haldinn. Í svörum frá forsætisráðuneytinu segir að fundurinn hafi verið haldinn í tengslum við minningarathöfn í Auschwitz þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er fulltrúi Íslands en ekki Kristrún.
Ísland var eina Norðurlandið sem ekki átti fulltrúa á fundinum sem Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur boðaði til með skyndi í Kaupmannahöfn í gær um mál Grænlands og öryggismál á Eystrasalti. Mette sagði í færslu á samfélagsmiðlum um fundinn í gær að samstaða Norðurlandanna hafi aldrei verið eins mikilvæg á tímum sem þessum. Upplýst um efni fundarins Samkvæmt upplýsingum frá Ólafi Kjaran Árnasyni, aðstoðarmanni forsætisráðherra var Kristrún upplýst um fundinn samdægurs. Hún var svo upplýst um efni fundarins í kjölfarið. Í svari forsætisráðuneytisins til Vísis vegna málsins segir að forsætisráðherra Danmerkur hafi boðið til óformlegs fundar með skömmum fyrirvara þar sem nokkrir leiðtogar Norðurlanda voru á leið til minningarathafnar í Auschwitz sem fram fer í dag. Áttatíu ár eru nú frá frelsun þeirra. „Utanríkisráðherra verður fulltrúi íslenskra stjórnvalda á minningarathöfninni. Forsætisráðherra var látinn vita af fundinum. Þar var fjallað um öryggismál í Eystrasalti og í Úkraínu eins og fram hefur komið á samfélagsmiðlum og hefur forsætisráðherra verið upplýstur um efni fundarins.“ Segir ennfremur í svari ráðuneytisins að Kristrún hafi í síðustu viku átt símafund með forsætisráðherrum hinna Norðurlandanna. Sá fundur hafi verið um öryggis- og varnarmál. Áhyggjuefni Ásælni Donald Trump Bandaríkjaforseta í Grænland hefur valdið mikilli óvissu í samskiptum Danmerkur og Bandaríkjanna. Þá hafa öryggismál í Eystrasaltinu verið í algleymingi vegna skuggaskipa Rússlands sem klippt hafa á sæstrengi. Meðal þeirra sem vekja athygli á fjarveru Kristrúnar er Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra sem reglulega skrifar um alþjóða- og öryggismál á bloggsíðu sinni. Hann segir það furðu sæta að ríkisstjórn Íslands steinþegi um stigmögnun í samskiptum Dana og Bandaríkjamanna vegna Grænlands. „Það sem vekur athygli íslensks lesanda þegar danski forsætisráðherrann talar um mikilvægi samstöðu og nánari samvinnu bandamanna og vina á óvissum örlagatímum er að íslenskur forsætisráðherra situr ekki við kvöldverðarborðið. Var Kristrúnu Frostadóttur ekki boðið til þessa óformlega samráðsfundar norrænna forystumanna? Eða þáði hún ekki boðið? Það er áhyggjuefni hvert sem svarið við þessum spurningum er.“ Frétt uppfærð 14:25.Fréttin hefur verið uppfærð með svörum frá aðstoðarmanni Kristrúnar.
Öryggis- og varnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Danmörk Svíþjóð Noregur Finnland Mest lesið Segir Robert frænda sinn athyglissjúkt rándýr Erlent Viðvörunarljós hefðu átt að blikka í ráðuneytinu Innlent „Líklegt að framganga Ingu liggi þungt á mörgum samráðherrum“ Innlent Gómuðu leðurblökuna Innlent Skýtur fast á Kristrúnu: „Þetta heitir að skrópa í vinnunni“ Innlent Líkur á eldgosi fara vaxandi Innlent Hvatvísin hafi verið við völd þegar hún tók upp tólið Innlent Örfáir læknar sinni hundruðum Innlent Inga iðrast og biðst afsökunar á símtali Innlent Fæddi barn í flugvél og nauðlenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Skýtur fast á Kristrúnu: „Þetta heitir að skrópa í vinnunni“ Fæddi barn í flugvél og nauðlenti á Íslandi Vestfirðingar þokast nær langþráðum vegabótum Æfðu viðbrögð við svörtustu sviðsmyndinni Inga iðrast og biðst afsökunar á símtali Fólk að „gambla“ með líf sitt ef það kaupir svona lyf Gómuðu leðurblökuna Stórhættuleg falskvíðalyf, ný könnun og iðrun Ingu „Líklegt að framganga Ingu liggi þungt á mörgum samráðherrum“ Flokkur fólksins leitar að upplýsingafulltrúa Líkur á eldgosi fara vaxandi Pawel stýrir utanríkismálanefnd Fjórtán metra hvalur í Guðlaugsvík Viðvörunarljós hefðu átt að blikka í ráðuneytinu Gagnrýna „glæfralegar ályktanir“ um „meintan veldisvöxt“ ADHD Hvatvísin hafi verið við völd þegar hún tók upp tólið Telur umræðu um styrki flokkanna háværa umfram tilefni Hótanir Trumps eigi ekki að líðast í lýðræðissamfélagi Kári nýr formaður Sameykis Styrkjamál flokkanna og ásælni Trumps í Grænland Örfáir læknar sinni hundruðum „Líta svo á“ að Sjálfstæðisflokkurinn hafi uppfyllt lögin Fjörutíu og fjórir einstaklingar 100 ára eða eldri Kallar eftir rannsókn og endurgreiðslu á styrkjum til stjórnmálaflokka Uppákoma eftir sérsveitaraðgerð á Bakkafirði „kornið sem fyllti mælinn“ Segir Grænland mikilvægt fyrir íslenska flugrekendur Telur efasemdir íbúa vegna áforma Carbfix eðlilegar Vegum lokað vegna snjóflóðahættu Rannsaka hvort dauðsfall megi rekja til falsaðs Xanax Kennaraverkföll: Hvenær, hvar og hve lengi? Sjá meira