Kemur út úr skápnum tveimur árum eftir andlát sitt Magnús Jochum Pálsson skrifar 25. janúar 2025 21:43 Reubens hélt einkalífi sínu eins leyndu og hann gat en afdrifadrík ferð í erótískt kvikmyndahús breytti því. Það orð fór af honum að hann væri samkynhneigður en vegna frægðar sinnar gat hann aldrei komið út úr skápnum á eigin forsendum. AP Paul Reubens, sem er þekktastur fyrir að leika Pee-wee Herman, hefur komið út úr skápnum í nýrri heimildamynd um líf leikarans sem lést fyrir tveimur árum síðan.
Heimildamyndin Pee-Wee as Himself fjallar opinskátt um líf Reubens sem hélt einkalífi sínu mjög huldu fyrir almenningi alla tíð. „Ég fór dult með kynhneigð mína, meira að segja gagnvart vinum mínum, vegna sjálfhaturs eða sjálfsbjargar,“ segir Reubens í heimildamyndinni sem var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni fimmtudaginn 23. janúar síðastliðinn. „Ég átti í innri baráttu með kynhneigð mína. En frægðin var miklu flóknari.“ Skelfilegt að vera stimplaður sem úrhrak Heimildamyndin byggir á viðtölum leikstjórans Matt Wolf við Reubens en heildarmyndefnið var fjörutíu klukkustundir að lengd. Reubens var sjötugur þegar hann lést í júlí 2023 eftir krabbameinsbaráttu sem hann hafði ekki greint opinberlega frá. Heimildamyndin hafi verið hugsuð til að skýra dularfullt líf leikarans. „Meira en nokkuð annað er ástæðan fyrir því að ég gerði heimildamyndina til að sýna fólki hver ég er í raun og veru og hversu sársaukafullt og skelfilegt það er að vera stimplaður sem eitthvað sem ég var ekki,“ sagði Reubens í hljóðupptöku sem hann tók upp daginn áður en hann dó. „Að vera stimplaður sem úrhrak; að fólk óttist þig og treysti þér ekki,“ sagði hann einnig í myndinni og vísar þar í handtöku sína frá 1991 þegar hann var handtekinn fyrir ósiðlega berun á leið út úr klámbíói í Sarasota í Flórída. Málið vakti mikla athygli og voru leikföng byggð á Pee-Wee Herman til að mynda tekin úr verslunum Toy 'R Us og mikið hæðst að Reubens í grín- og spjallþáttum. Fjöldi listamanna og samstarfsmanna Reubens lýstu yfir stuðningi við Reubens og aðdáendur hans héldu fjöldafundi til að mótmæla ákvörðun CBS um að taka endursýningar á Pee-Wee's Playhouse af dagskrá. „Kom út úr skápnum og svo fór ég aftur inn í hann“ Reubens játaði ekki sekt í málinu heldur svaraði með svokallaðri „no contest“-málsvörn sem þýddi að brotið fór ekki á sakaskrá hans en hann var dæmdur til 75 klukkustunda samfélagsvinnu. „Ég hélt því hver ég var leyndur í mjög langan tíma. Það kom virkilega í bakið á mér þegar ég var handtekinn,“ segir hann einnig í heimildamyndinni. Fangamynd af Paul Reubens frá því 1991 þegar hann var handtekinn í Sarasota.Getty „Fólk hafði aldrei séð mynd af mér nema sem Pee-Wee Herman. Og allt í einu var komin Charlie Manson-fangamynd af mér. Ég missti stjórn á nafnleysi mínu. Það var átakanlegt,“ segir hann. „Ég kom út úr skápnum og svo fór ég aftur inn í hann,“ segir Reubens. „Það er hneykslandi hvað fólk hugsar hræðilega ljóta hluti um mig.“ Málið væri enn stór neðanmálsgrein í lífi hans. Í heimildamyndinni greindi Reubens meðal annars frá því að áður en hann varð frægur sem Pee-Wee Herman hafi hann verið í sambandi með manni sem hét Guy og var frá Echo Park í Los Angeles. Mikið af töktum og frösum Guy hafi verið innblástur að helstu einkennum Herman. Guy hafi síðan dáið úr AIDS. Nektarmyndir komu honum aftur í klandur Reubens lenti aftur í vandræðum þegar lögreglan í Los Angeles gerði húsleit á heimili hans og gerði gríðarlegt magn eigna Reubens upptækt. Þar á meðal voru 70 þúsund kitsch minjagripir og tugir mynda sem lögreglan skilgreindi sem barnaklám. Reubens var ákærður fyrir vörslu kynferðislegs efnis sem sýndi barn undir 18 ára aldri. Hann neitaði fyrir að efnið væri klám, hann væri safnari ýmiss konar erótísks efnis, þar á meðal vöðvatímarita og antík-nektarmynda, sumar hverjar yfir hundrað ára gamlar. Reubens sagði myndirnar ekki fela í sér neitt klámfengt þó þær væru af ungum mönnum. Ákæran var látin niður falla í mars 2004 gegn því að Reubens játaði á sig minniháttar klámbrot. Var honum gert að tilkynna sig næstu þrjú árin hjá lögreglu og var bannað að vera einn í kringum börn.
Hollywood Hinsegin Bíó og sjónvarp Bandaríkin Mest lesið Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Lífið Verkefnið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og varð Daníel að þegja í hálft ár Lífið Fór í hjartastopp eftir að hafa borðað 10.000 hitaeiningar á dag Lífið Óttast að Dimma hafi endað í gini tófunnar Lífið Leikur plötusnúð á Hollywood sem eltir æskuástina til Spánar Lífið Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Bíó og sjónvarp Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lífið Kjallarinn eins og nýr hjá Ásu og Árna Lífið „Ma & pa í apríl“ Lífið Inga Elín hannar fyrir Saga Class Lífið Fleiri fréttir Útgeislun og glæsileiki í húðvörupartýi Verkefnið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og varð Daníel að þegja í hálft ár Óttast að Dimma hafi endað í gini tófunnar Inga Elín hannar fyrir Saga Class Kjallarinn eins og nýr hjá Ásu og Árna „Ma & pa í apríl“ Bryndís Líf og Stefán eiga von á dreng Leikur plötusnúð á Hollywood sem eltir æskuástina til Spánar Fór í hjartastopp eftir að hafa borðað 10.000 hitaeiningar á dag Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? 50+: Það má segja Nei við barnapössun Gummi Ben gerir aldargamla fjölskylduuppskrift Inga Sæland fór á kostum í „Hvort myndir þú?“ Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lýsa endalokum vinsæls frasa: „Megi six-seven hvíla í friði“ Harbour og „Madeline“ sögð hafa endurnýjað kynnin Menningarmýs komu saman í jólafíling Retró-draumur í Hlíðunum Fjarlægði tónlistina þar til nýja platan hefur verið fjármögnuð „Ég heillast af hættunni“ „Mér finnst þessi vegferð okkar ótrúlega glæsileg“ Sögufrægt hús falt fyrir tvö hundruð milljónir Máttu ekkert gera og fóru þá að trufla Sunna Ben og Andri Freyr héldu „ponsulítið brúðkaup“ Helgi Ómars nú Heilsu-Helgi Þurfa að staðfesta á fimm ára fresti að dóttir þeirra sé enn með Downs Theodór Elmar og Pattra í sundur Kristján Guðmundsson látinn Simmi Vill í meðferð Sambærilegt því að spila með Real Madrid Sjá meira