Erlent

Á bak við hvert vanda­mál er barn sem líður illa

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Atli Freyr Magnússon segir ákveðið óöryggi vera meðal kennara.
Atli Freyr Magnússon segir ákveðið óöryggi vera meðal kennara. Vísir

Klínískur atferlisfræðingur segist finna fyrir talsverðum breytingum innan skólasamfélagsins. Hann segir kennara og nemendur finna fyrir óöryggi vegna þessara breytinga.

„Ég og kollegar mínir höfum verið að vinna með kennurum inni í almennum skólum og við erum klárlega að sjá breytt umhverfi,“ segir Atli Freyr Magnússon, klínískur atferlisfræðingur.

Það sé fjölbreyttari nemendahópur í skólum og þar af leiðandi fjölbreyttari vandamál sem kennarar þurfa að eiga við.

„Það má oft á tíðum koma til móts við þessa krakka,“ segir Atli.

Mikil vitundarvakning hafi átt sér stað meðal barna varðandi réttindi sín. Atli segist finna fyrir þessar vakningu innan skólasamfélagsins. 

„Ég finn fyrir því þegar ég kem inn í skólann að kenna námskeið og veita ráðgjöf að margir eru óöruggir í þessum nýja veruleika. Ég tel þessar breytingar vera mjög góðar þó svo að skrefin sem þarf að taka til þess að ná fram og að vinna meðfram réttindum barna séu erfið, er það umhverfið sem allir vilja vinna í,“ segir Atli.

Ákveðið óöryggi sé meðal kennara um hvaða skref eigi að taka og geti það skapað óöryggi hjá börnunum.

„Síðan má ekki gleyma því í öllu þessu að það er vandamál í grunnskólum en á bak við öll þessi mál eru börn í vanda og þessi vandi verður ekki leystur öðruvísi heldur en að koma til móts við börnin. Þetta eru börn sem að líður illa og þau eru að missa stjórn á skapi sínu í skólanum, sem er klárlega erfitt fyrir skólasamfélagið, en á bak við hvert og eitt mál er barn sem líður illa og þarf á aðstoð að halda.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×