Lífið

Hélt þetta væri grín þegar hann vaknaði úr dái

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Jamie Foxx er þakklátur fyrir að vera á lífi.
Jamie Foxx er þakklátur fyrir að vera á lífi. EPA-EFE/HANNIBAL HANSCHKE

Bandaríski leikarinn Jamie Foxx hélt að læknarnir væru að grínast þegar þeir sögðu honum að hann hefði verið í dái í tuttugu daga þegar hann vaknaði loksins á spítala í apríl 2023. Hann segist ekkert muna frá þessu tímabili.

Leikarinn sagði frá þessu í setti hjá hinum breska sjónvarpsmanni Graham Norton. Hann fékk heilablóðfall í apríl fyrir tveimur árum og hefur lýst því að upphaflega hafi hann haldið að einungis væri um slæman hausverk að ræða. Systir hans Deidra Dixon hafi ekki tekið í mál að leyfa honum að taka einungis inn verkjatöflur og farið með hann á spítala.

Þar var gerð bráðaaðgerð á leikaranum sem hann segir að hafi bjargað lífi hans. Eins og fram hefur komið hélt fjölskylda hans spilunum þétt að sér á þeim tíma og sagði einungis frá því í opinberri tilkynningu að Foxx ætti við heilsufarsleg vandamál að stríða.

„Ég var ekki hress en nú er ég aftur hress! Þetta er svona reynsla sem lætur þig átta þig á því að þú þarft á ástvinum þínum að halda til þess að komast í gegnum þetta,“ segir leikarinn meðal annars hjá Norton.

„Ég man ekki eftir neinu sem gerðist þannig að þegar ég rankaði við mér tuttugu dögum síðar þá hélt ég að það væri verið að stríða mér. Þetta var meira en klikkað,“ segir leikarinn. Hann var á þessum tíma að leika í kvikmyndinni Back in Action með Cameron Diaz og nú styttist í útgáfu hennar.

Foxx segist hafa beitt húmornum óspart til þess að koma til baka eftir veikindin. „Þegar ég vaknaði þá var ég í hjólastól. Ég gat ekki gengið. Guð blessaði mig með peningum og frægð en þegar ég gleymdi Guði þá blessaði hann mig með heilablóðfalli.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.