Ein svakalegasta troðsla tímabilsins fékk ekki að standa Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. janúar 2025 17:00 Ja Morant setti Victor Wembanyama á veggspjald eins og krakkarnir segja. Ja Morant, leikmaður Memphis Grizzlies, sýndi frábær tilþrif er hann tróð yfir Victor Wembanyama, leikmann San Antonio Spurs, í leik liðanna í NBA-deildinni í nótt. Því miður fyrir Morant taldi karfan ekki.
Morant skoraði 21 stig og gaf tólf stoðsendingar þegar Memphis bar sigurorð af San Antonio á útivelli, 115-129. Hann var stigahæstur í liði Grábjarnanna ásamt Desmond Bane. Þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af leiknum fór Morant framhjá Stephon Castle og óð í átt að körfunni. Þar beið hans hinn 2,24 metra hái Wembanyama. Morant setti það ekki fyrir sig og tróð yfir Frakkann. Ja Morant just threw down a CRAZY dunk after the whistle 🤯😱 pic.twitter.com/fpQnist4AJ— NBA (@NBA) January 16, 2025 Þessi tilkomumikla troðsla taldi hins vegar ekki þar sem dómararnir voru búnir að dæma villu á Castle. Tilþrifin voru þó glæsileg. Morant og félagar í Memphis eru í 3. sæti Vesturdeildarinnar með 26 sigra og fimmtán töp. Í vetur er Morant með 21,4 stig, 4,3 fráköst og 7,5 stoðsendingar að meðaltali í leik.
NBA Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Sjá meira