Innlent

Á­hyggjur Icelandair af lokun flug­brautar og ó­þrjótandi píp-hljóð

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sindri Sindrason les kvöldfréttir á Stöð 2 í kvöld.
Sindri Sindrason les kvöldfréttir á Stöð 2 í kvöld. Vilhelm

Icelandair hefur töluverðar áhyggjur af því að ISAVIA hafi verið gert að loka annarri tveggja flugbrauta á Reykjavíkurflugvelli. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 

Þá verður fjallað um dóm sem féll í hérðasdómi Reykjavíkur í síðustu viku, þar sem karlmaður var sakfelldur fyrir að hafa ítrekað nauðgað andlega fatlaðri konu. Fimm menn til viðbótar, sem nauðguðu konunni að áeggjan mannsins, voru ekki ákærðir í málinu þrátt fyrr að lögreglu hafi tekist að bera kennsl á fjóra þeirra. Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri Þroskahjálpar ræðir málið í beinni útsendingu.

Eldar brenna enn í Los Angeles og illa gengur að slökkva þá. Rafmagn hefur verið tekið af 35 þúsund heimilum til að koma í veg fyrir að fleiri eldar kvikni.

Þá rýnum við í píp-hljóð sem hefur angrað marga eigendur nýrra bíla. Ný og fleiri píp hafa bæst í flóruna, til dæmis þegar ekið er yfir hámarkshraða. Ómögulegt er að slökkva á hljóðmerkinu varanlega.

Og við heimsækjum tvo kiðlinga sem komu í heiminn á dögunum.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×