Lífið

Val­geir af­henti Ingu texta­brot úr laginu Sigur­jón digri

Lovísa Arnardóttir skrifar
Valgeir og Ásta Kristrún með formönnum ríkisstjórnarflokkanna þriggja. Frá vinstri Valgeir Guðjónsson, Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir.
Valgeir og Ásta Kristrún með formönnum ríkisstjórnarflokkanna þriggja. Frá vinstri Valgeir Guðjónsson, Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir. Aðsend

Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir, námsráðgjafi og rithöfundur, afhentu formönnunum þremur í ríkisstjórn ljóðagjöf fyrir fund ríkisstjórnarinnar í gær. Textabrot úr laginu Sigurjón digri féll vel í kramið hjá formanni Flokki fólksins, Ingu Sæland. 

Í tilkynningu frá Valgeiri og Ástu Kristrúnu segir að eftir að hafa fylgst með Kristrúnu Frostadóttur, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Ingu Sæland, eða Valkyrjunum, síðustu tvær vikurnar hafi tvö ljóð Valgeirs poppað endurtekið upp í huga hans.

Bæði hafi ljóðin boðskap til að bera sem mátast við ásýnd Valkyrjanna.

Valgeir og Ásta Kristrún.Aðsend

„Boðskapur fyrra ljóðsins „Kveiktu á ljósi“ felur í sér ákall til mannfólksins að kveikja á ljósinu innra með okkur og veita því áfram til annarra.

Boðskapurinn á bæði við um hvernig þær þrjár vinna saman og án efa almennt með öðrum. Að auki höfum við skynjað svo sterkt hvernig skilaboð þeirra um betri tíð hefur varpað ljósi inn í þjóðarsálina. Með ljóði sínu vill Valgeir beina sjónum okkar að því hvernig við getum öll virkjað ljósið innra með okkur og veitt ljósinu til annarra hvern dag; eitt lítið bros til náungans getur gert gæfumuninn,“ segir í tilkynningu um málið en hún er send út af Menningarhúsinu Bakkastofu.

Menningarhúsið er starfrækt af fjölskyldu Valgeirs og Ástu Kristrúnu.

Í tilkynningunni segir að heiti hins ljóðsins sé „Biðjum um frið“.

„Ljóðið lýsir þrá okkar um frið í heiminum. Þennan boðskap getum við líka öll tileinkað okkur. Í boðskapnum felst að þótt okkur finnist við magnlítil gagnvart hörmungum heimsins getum við lagt okkur fram með því að beina hugarorkunni og óskinni um frið á jörðu áfram gegnum himingeiminn.“

Auk þessara tveggja ljóða afhentu Valgeir og Ásta Kristrún Ingu Sæland textabrot úr laginu Sigurjón digra.

„Sú gjöf féll nú heldur betur í kramið hjá okkar tónfúsu Ingu Sæland og henni þótti nú ekki verra að fá textann afhentan úr hendi höfundar lags og texta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.