Bjarni gefur ekki kost á sér og afsalar sér þingsæti Vésteinn Örn Pétursson skrifar 6. janúar 2025 13:30 Bjarni Benediktsson ætlar að láta gott heita, eftir 22 ár á þingi. Vísir/Vilhelm Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki að gefa kost á sér í formannskjöri á komandi landsfundi flokksins. Hann ætlar ekki að taka sæti á þingi síðar í mánuðinum.
Frá þessu greinir Bjarni á Facebook. „Ég hef fengið mörg tækifæri á sviði stjórnmálanna en aldrei tekið því sem sjálfsögðum hlut að endurnýja umboð mitt, síðast í kosningunum í nóvember, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk áfram flest atkvæði í kjördæmi mínu. Ekkert hefur þroskað mig meira og mótað í lífinu en að fá að glíma við öll þessi flóknu úrlausnarefni sem þingmaður og ráðherra, eiga samtal við kjósendur og standa þeim reikningsskil af verkum okkar,“ skrifar Bjarni. Bjarni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins árið 2022, þar sem hann stóð af sér mótframboð frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.Vísir/Vilhelm Á tímamótum sem nú standi yfir hafi hann ákveðið að sækjast ekki eftir endurnýjuðu umboði til að leiða flokkinn. Kosningarnar hafi engu að síður skilað Sjálfstæðisflokknum næst flestum þingmönnum á Alþingi, og flokkurinn verið rúmu prósentustigi minni en stærsti flokkurinn, sem er Samfylkingin. Jón Gunnarsson dettur inn Bjarni segir mikil tækifæri nú opnast fyrir flokkinn í stjórnarandstöðu, til að styrkja samband sitt við almenna kjósendur og skerpa á forgangsmálum. Á komandi landsfundi, sem fyrirhugaður er í febrúar, verði ný forysta kjörin. Hún fái það hlutverk að móta áherslur kjörtímabilsins og vinna að góðum sigri í næstu kosningum. Bjarni finni hjá sér að það sé rétt ákvörðun að eftirláta öðrum að móta það starf. „Ég hef verið þingmaður í Suðvesturkjördæmi frá árinu 2003 og tók fyrst sæti á þinginu 33 ára gamall. Síðar í mánuðinum verð ég 55 ára. Þetta hefur verið lengri þingseta en ég hefði nokkurn tímann getað ímyndað mér og mikill heiður að hafa notið slíks trausts.“ Undanfarna daga hafi hann litið yfir farinn veg með sínum nánustu, rætt og hugsað um framtíðina. Nú sé rétti tíminn til að breyta til. Það sé ekkert launungarmál að hann muni njóta þess að eiga meiri tíma með sístækkandi fjölskyldu, og til að sinna öðrum hugðarefnum. „Í ljósi þessara aðstæðna hef ég ákveðið að taka ekki sæti á því þingi sem hefst síðar í mánuðinum. Næstu vikur ætla ég að taka mér frí en hyggst svo taka mín síðustu skref á pólitíska sviðinu og kveðja vini mína í Sjálfstæðisflokknum á landsfundinum sem framundan er, þar sem blásið verður til sóknar fyrir þjóðlífið allt,“ skrifar Bjarni. Þetta gerir það að verkum að Jón Gunnarsson, sem var í fimmta sæti á lista Sjálfstæðismanna í suðvesturkjördæmi, færist upp í það fjórða og þar með inn á þing. Gengur sáttur frá borði Í færslunni segir Bjarni að það hafi verið forréttindi og heiður að leiða flokkinn frá árinu 2009. Hann skilji sáttur við verk sín, þakklátur fyrir stuðninginn og stoltur af sínum störfum sem þingmaður í tæplega 22 ár. „Á mínum fyrstu árum í forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn var staðan í þjóðlífinu erfið. Mikið uppgjör var framundan og þörf fyrir endurreisn á sviði efnahagsmála. Við Íslendingar fengumst við einhverja mestu efnahagskrísu lýðveldistímans og mikil átök voru í þinginu um pólitíska stefnumörkun. Allt var undir fyrir Ísland á þessum örlagaríku tímum og ég lagði allt mitt af mörkum fyrir landið okkar ásamt samherjum í flokknum, og hef gert það alla tíð síðan,“ skrifar Bjarni. Bjarni var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem mynduð var árið 2013. Hér er hann ásamt Sigmundi og Eygló Harðardóttur, þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra, árið 2015.vísir/gva Hann segir að árangurinn sem náðst hefði frá því flokkurinn tók sæti í ríkisstjórn árið 2013 hafa farið fram úr hans björtustu vonum. Íslenskt þjóðfeálg sé gott, og hafi staðið af sér storma og áföll. Lífskjör vaxið og segja megi að hvergi sé betra að búa en á Íslandi. „Grunnurinn að þessum árangri felst í trú á fólkið í landinu, tækifærum þess til að láta til sín taka og stefnu um að skapa megi mikil verðmæti fyrir landsmenn alla ef ríkið styður við samfélagið með réttum hætti og einkaframtakið fær að njóta sín. Þessar áherslur ruddu brautina að miklu vaxtarskeiði, landsmönnum hefur fjölgað, mikil ný útflutningsverðmæti orðið til og grunnur að sterkara velferðarkerfi var lagður. Þetta er sjálfstæðisstefnan í hnotskurn.“ „Ekkert hefur þroskað mig meira“ Bjarni kveðst hafa fengið fjölda tækifæra á sviði stjórnmálanna, en aldrei tekið því sem sjálfsögðum hlut að endurnýja umboð sitt. „Ekkert hefur þroskað mig meira og mótað í lífinu en að fá að glíma við öll þessi flóknu úrlausnarefni sem þingmaður og ráðherra, eiga samtal við kjósendur og standa þeim reikningsskil af verkum okkar.“ Í niðurlagi færslu sinnar segir Bjarni það ekki ætlun sína að gera upp allan stjórnmálaferilinn þar. Það muni hann mögulega gera síðar. „En ég vil nota tækifærið og þakka öllu samferðarfólki mínu í fjölbreyttum hlutverkum, flokksfólki, þingmönnum úr ólíkum flokkum, ráðherrum, sveitarstjórnarfólki, starfsfólki á Alþingi og í stjórnarráðinu, embættismönnum og síðast en ekki síst þér, hinum almenna kjósanda, þakka ég öll samskiptin – saman höfum við unnið að því að gera gott samfélag enn betra. Mínar bestu óskir til ykkar allra um farsælt nýtt ár. Virðingarfyllst, Bjarni Benediktsson.“ Bjarni mun ekki veita fjölmiðlum viðtöl vegna ákvörðunarinnar í dag. Þetta hefur fréttastofa fengið staðfest frá aðstoðarmanni hans. Fréttin hefur verið uppfærð.
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Tímamót Alþingiskosningar 2024 Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024) Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2025 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Sjá meira