„Þetta er það sem gerir þá öðruvísi en önnur lið“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. janúar 2025 07:03 Stólarnir unnu frábæran sigur vestur í bæ í síðustu umferð. Vísir/Anton Brink Tindastóll vann frábæran sigur á KR í síðustu umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Í Körfuboltakvöldi í kjölfarið var farið yfir hvað Tindastóll hefur sem önnur lið á Íslandi búa hreinlega ekki yfir. „
Það sem er kannski það fallegasta við íþróttina; menn detta í gírinn, það er stemmning, það er allt með þér,“ sagði þáttastjórnandinn Stefán Árni Pálsson áður en Pavel Ermolinskij fékk orðið. Klippa: Körfuboltakvöld: „Þetta er það sem gerir þá öðruvísi en önnur lið“ „Þetta er eitthvað sem leikmenn geta stundum gert, þar sem þeir detta í svona gír en að lið geti dottið í svona gír í sameiningu sem ein heild er miklu erfiðara og það geta ekki öll lið. Tindastóll hefur alltaf verið með þetta sem þeirra aðalsmerki,“ sagði Pavel og hélt áfram. „Allt liðið dettur í trans í nokkrar mínútur þar sem það er allt ofan í, vörnin er á milljón, þetta er þeirra helsta vopn. Þetta er það sem gerir þá öðruvísi en önnur lið, það eru þessir kaflar.“ „Við höfum komið inn á þetta áður. Það sem Tindastóll sýndi á köflum gegn KR og hafa margoft í gegnum tíðina, tala nú ekki um Síkið í maí. Ekkert annað lið getur boðið upp á þetta. Þetta er ótrúlega sterkt vopn, það er svo niðurdrepandi að lenda í þessum vegg.“ „Ef ég umorða þetta, ef ég skil þetta upp þá geta þeir farið hærra upp en önnur lið á meðan í gegnum tíðina hafa önnur lið kannski verið stöðugri,“ sagði Helgi Már Magnússon að endingu en umræðuna í heild sinni má sjá í spilaranum ofar í fréttinni.
Körfubolti Körfuboltakvöld Tindastóll Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Sjá meira