Innlent

„Skíta­veður á að­fanga­dags­kvöld og jóla­dag“

Kristín Ólafsdóttir og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa
Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm

Varasamt ferðaveður er víða á landinu í dag, og verður einkum norðan- og norðaustanlands í kvöld. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst fram yfir hádegi og vegum gæti verið lokað án fyrirvara. Þá er spáð jólastormi á sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og hinn.

Mikil lægð gekk yfir landið í nótt og í morgun, með suðaustan stormi, slyddu og rigningu. Þrengslavegi var til að mynda lokað um tíma og vegir verða víða áfram á óvissustigi í dag. Þá féll lítið snjóflóð í Raknadalshlíð í Patreksfirði í morgun. Moka þurfti í gegnum flóðið sem náði rétt inn á Barðastrandaveg. Öllu innanlandsflugi til og frá Reykjavíkurflugvelli var jafnframt aflýst í morgun.

Fyrsta flug á áætlun er til Akureyrar klukkan hálf fjögur síðdegis, samkvæmt vef Isavia. Allar ferðir eftir það eru á áætlun þegar þetta er ritað á tólfta tímanum. Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir óveðrið í nótt og í morgun nú að mestu gengið yfir og veður verði skaplegra næstu klukkutímana.

„En síðan síðdegis fer aftur að hvessa og í kvöld verða mjög hvassir vindstrengir á Norður- og Vesturlandi. Það verður líka sæmilega hvasst annars staðar,“ segir Birgir Örn.

Ferðaveður verði því aftur varasamt í kvöld og Birgir er til að mynda ekki bjartsýnn á að kvöldflugi til Akureyrar verði haldið til streitu. Veður gengur svo að miklu leyti aftur niður í nótt og fyrripart dags á morgun, aðfangadag, en seinnipartinn er enn og aftur spáð sviptingum.

„Þá fer að bæta í vind og annað kvöld og jóladag er útlit fyrir mjög hvassan éljagang, og ansi dimm él, á sunnan og vestanverðu landinu og þá verður aftur útlit fyrir leiðindaveður, þannig það er ýmislegt í gangi,“ segir Birgir Örn. „Norður og austurhluti landsins ætti að sleppa betur yfir jólin en þar verður hins vegar þó nokkuð hvasst í kvöld.“

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eiga þannig ekki von á góðu.

„Bara skítaveður hérna á aðfangadagskvöld og jóladag,“ segir Birgir Örn.

Vegagerðin upplýsir ferðalanga

Nýjustu upplýsingar varðandi færð á vegum eru uppfærðar í rauntíma á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is

Daníel Þorláksson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni, spáir vetrarfærð á morgun. Blint verði í dimmu éljum og akstursskilyrði erfið á Suður- og Vesturlandi annað kvöld. Í kvöld verði hvöss suðvestanátt og hviður um 35 metra á sekúndu. Hvassviðrið verður helst á Ströndum, í Skagafirði og Eyjafirði. 

Ferðalangar eru hvattir til að skoða síðu Vegagerðarinnar gaumgæfilega áður en haldið er af stað - og á meðan ferðalagi stendur, eins og kostur er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×